Sími : 5 800 900
Hreyfing - Öryggi

Hreyfing - Öryggi

Hreyfing-Oryggi_200_JPGAllir þurfa á daglegri hreyfingu að halda óháð aldri, kyni, holdafari, andlegri eða líkamlegri getu. Með því að skapa öruggar aðstæður, sem takmarka langvarandi kyrrsetu og styðja bæði nemendur og starfsfólk skóla til daglegrar hreyfingar, má leggja grunninn að því að sem flestir fullnægi sinni daglegu hreyfiþörf. Með aðstæðum er bæði vísað til ýmiss konar starfs sem fram fer í tengslum við skólann og til þeirrar aðstöðu sem starfinu er búin, bæði innan- og utandyra, með tilliti til hreyfingar og öryggis.

Auk ýmiss konar ávinnings fyrir heilsuna er hreyfing nemenda m.a. tengd betri einbeitingu og meiri afköstum, betri hegðun, minni truflunum á kennslu og betri námsárangri. Vinnustaðir sem stuðla að reglulegri hreyfingu starfsfólks eru auk þess líklegir til að uppskera m.a. þrekmeira og heilsuhraustara starfsfólk, færri veikindadaga, bætt samskipti, meiri starfsánægju, öflugri liðsheild og minni starfsmannaveltu. 

Öruggt skólaumhverfi, sem stuðlar að daglegri hreyfingu nemenda og starfsfólks, er því sannarlega til þess fallið að stuðla að árangursríkri kennslu og námi í grunnskólum.

Deildu með öðrum

Hér verður aðgengilegt margskonar stuðningsefni um hreyfingu og öryggi fyrir Heilsueflandi grunnskóla, auk nýjustu uppfærslu viðkomandi blaðsíðna í handbókina fyrir heilsueflandi grunnskóla.

Hreyfing_pinulitilKafli handbókarinnar um hreyfingu og öryggi (pdf-skjal, nóv 2010), með fyrirvara um síðari breytingar í ljósi reynslu og ábendinga.



Verkfærakistan ­­― Hreyfing

Reglulega er hér bætt þar við nýju efni og eru allar gagnlegar ábendingar vel þegnar.


Ráðleggingar um hreyfingu

Virkni í skólastarfi, handbók um hreyfingu fyrir grunnskóla

Teygjuhlé fyrir börn og unglinga -Tölvuforrit

Hreyfihringinn

Íhlutunarrannsóknin lífsstíll 7-9 ára barna



Verkfærakistan ­­― Öryggi

Reglulega er hér bætt þar við nýju efni og eru allar gagnlegar ábendingar vel þegnar.


Gátlisti fyrir frístundaheimili

Gátlisti fyrir frístundaheimili – lóðir

Gátlisti fyrir leikjanámskeið

Gátlisti fyrir leikjanámskeið – lóðir

Gátlisti fyrir leiksvæði - Landsbjörg

 

Frá hinu opinbera; reglugerðir og fl:

Reglur um öryggi á sundstöðum .

Reglur um öryggi í íþróttahúsum: 

Vinnuverndarlögin nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

Vinnuvernd á vinnustöðum nr. 920/2006

Vinnuumhverfisvísar fyrir áhættumat grunnskóla




Þetta vefsvæði byggir á Eplica