Geðrækt – tilfinningaleg heilsa og vellíðan
Tilfinningaleg heilsa og vellíðan barna og unglinga leggur grunn að velferð þeirra í lífinu. Samkvæmt Alþjóðaheil-brigðismálastofnuninni er góð geðheilsa og líðan undirstaða allra lífsgæða og gerir fólki fært að finna tilgang með lífinu og vera virkir og skapandi þjóðfélagsþegnar.
Með því að efla geðheilsu barna og unglinga er stuðlað að því að gera þau færari í að skilja og tjá tilfinningar sínar, efla sjálfsmynd, sjálfstraust og þrautseigju, sem svo aftur leiðir til bætts námsárangurs.
Skólaumhverfið er næst á eftir heimili barnsins mikilvægasta umhverfi þess, umhverfi sem mótar félags- og tilfinningaþroska þess. Í skólanum gefst tækifæri til að efla félagsþroska barnsins í leik og starfi með öðrum börnum en einnig fullorðnu fólki. Þar læra þau að láta í ljós skoðanir sínar og viðhorf og kynnast því til hvers er ætlast af þeim sem samfélagsþegnum.
Hér á síðunni er aðgengilegt margskonar stuðningsefni varðandi tilfinningalega heilsu og vellíðan nemenda í heilsueflandi grunnskólum, auk nýjustu uppfærslu viðkomandi blaðsíðna í handbókinni fyrir heilsueflandi grunnskóla.
Verkfærakista – Geðrækt
Reglulega er hér bætt við nýju efni og eru allar gagnlegar ábendingar vel þegnar.
Nýjasta útgáfa þess kafla handbókar heilsueflandi grunnskóla sem fjallar um geðrækt (pdf-skjal, nóv 2010), á hverjum tíma, með fyrirvara um áframhaldandi breytingar í ljósi reynslu og ábendinga.
Fleira:
Lífsleikninámsefnið Vinir Zippýs
Að koma í veg fyrir sjálfsvíg og sjálfsvígstilraunir unglina
Geðheilsa þín skiptir máli – ætlað ungu fólki (hægt er að panta þetta efni prentað frá Lýðheilsustöð).
Geðheilsa barnsins þíns – ætlað foreldrum og öðrum aðstandendum ungs fólks (hægt er að panta þetta efni prentað frá Lýðheilsustöð).
