Heilsueflandi framhaldsskólar - Tengiliðir
Tengiliðir hafa það hlutverk að vera tengiliður skólans við verkefnisstjóra Heilsueflandi framhaldsskóla auk þess að hafa umsjón með verkefninu í sínum skóla og sjá þá m.a. um stýrihóp þess innan skólans.
Yfirlit
Fyrstu skrefin
Lýsing á fyrstu skrefum fyrir tengilið - pdf skjal1) Stýrihópur
Fyrsta skref tengiliðs skólans við verkefnið er að íhuga hverjir eiga helst heima í stýrihópi verkefnisins.
a. Gott er að huga að öllum málaflokkunum, þ.e. næringu, hreyfingu, geðrækt og lífsstíl (og jafnframt að stýrihópur geti verið settur til eins árs til að byrja með).
Varðandi hópinn á undirbúningsárinu:
i. Vænlegt þykir að hafa einn fulltrúa sem tengist næringu (t.d. matráð eða kennara í næringarfræði), einn sem tengist hreyfingu (t.d. leikfimiskennara), einn sem tengist geðrækt (t.d. náms- og starfsráðgjafa eða sálfræðikennara) og einn sem tengist lífsstíl almennt (t.d. forvarnarfulltrúa).
ii. Vænlegt er að aðili úr yfirstjórn skólans sé einnig í hópnum (viðkomandi þarf kannski ekki að sækja alla fundi, en þá má upplýsa vel um gang mála á fundum auk þess sem fundargerðir eru skráðar).
iii. Sjálfsagt er að bjóða fulltrúa nemendaráðs og foreldraráðs að eiga fulltrúa í hópnum.
iv. Það þarf ekki að takmarka hópinn við fulltrúa skólans. T.d. gætu fulltrúar frá íþróttafélögum, sveitarfélagi, lögreglu og heilsugæslu vel átt heima í hópnum.
v. Í hópnum ættu helst ekki að vera færri en fjórir og hann getur verið eins stór og áhugi leyfir.
2) Heimsókn verkefnisstjóra Lýðheilsustöðvar
Kanna þarf hvort dagsetningin fyrir fyrstu heimsókn verkefnisstjóra Lýðheilsustöðvar, sem stungið er upp á í tölvupósti, henti tengilið og skólanum – geri hún það ekki þarf leggja sem fyrst til aðra dagsetningu(hedinn@lydheilsustod.is).
Gert er ráð fyrir að verkefnisstjóri verji heilum vinnudegi í þá heimsókn. Þá er a.m.k. gert ráð fyrir að vinna skv. liðum a., b. & c., hina hugsanlega líka, ef áhugir er fyrir hendi:
a. Fundur með tengiliði (strax um morguninn).
b. Fundur með stýrihópi (eða líklegum aðilum): Kynning á verkefninu.
c. Fundur með a.m.k. einum skólastjórnanda.
d. Stutt kynning á verkefninu fyrir starfsfólk.
e. Kynning á verkefninu fyrir nemendur.
f. Fundur með fulltrúum foreldrafélagsins.
g. Skoða má möguleikann á því að gera fleira sem óskað er eftir.
3) Næringarfræðingur frá Lýðheilsustöð
Næringarfræðingur frá Lýðheilsustöð mun heimsækja skólann í vetur. (Í sumum tilfellum með fyrrnefndum verkefnisstjóra í fyrstu heimsókn.)
Þá er gert ráð fyrir að næringarfræðingurinn fái tækifæri til að:
a. Halda erindi og/eða fund með starfsfólki sem tengist mötuneyti, sjoppu eða annarri framleiðslu á mat, sem og öðru áhugasömu starfsfólki. Hann kynnir þá jafnframt nýja handbók um næringu í framhaldsskólum og námsefni (glærur) sem standa skólanum til boða.
b. Halda erindi fyrir nemendur, sé eftir því óskað.
4) Vinna stýrihóps
Stýrihópurinn ákveður hver séu helstu sóknarfærin með verkefninu og hvaða áherslur verði lagðar á komandi árum (m.ö.o. hvað er það sem þarf að huga að og/eða breyta?).
Ræða þarf hver markmiðin með vinnunni eru og hugsanlegur ávinningur. Gott er þá að hugsa m.a. út í vænleg inngrip, aðgerðaráætlanir, skólareglur, mögulega fræðslu fyrir nemendur og/eða starfsfólk og hugsanlegar breytingar á umhverfi skólans. Taka þarf alla fjóra málaflokkana (næringu, hreyfingu, lífsstíl og geðrækt) inn í þessa fyrstu greiningarvinnu. Í vetur verður svo unnið lengra með þessa forvinnu í samstarfi við verkefnisstjóra Lýðheilsustöðvar.
5) Gátlisti skólans
Í kjölfarið þróar stýrihópurinn gátlista í samráði og samstarfi við
verkefnisstjóra Lýðheilsustöðvar. Þetta verður rætt nánar í tengslum við fyrstu heimsókn verkefnisstjóra Lýðheilsustöðvar.
6) Samstarfsaðilar
Stýrihópurinn metur hvaða aðilar væru vænlegastir sem samstarfsaðilar.
a. Hér geta verið um að ræða heilsugæslu, lögreglu, veitingastaði, sjoppur, bakarí, líkamsræktarstöðvar, íþróttafélög, aðra skóla, o.s.frv.
b. Verkefnisstjóri Lýðheilsustöðvar styður svo skólann við að setja í sig í samband við þá aðila og koma á samstarfi.
7) Námsskeið
Í lok vetrar býður verkefnisstjóri Lýðheilsustöðvar upp á námskeið (e. „masterclass“) fyrir allt áhugasamt starfsfólk skólans. Áætla þarf hálfan dag fyrir slíkt.
8) Árangursmat
Stýrihópur þarf að huga að árangursmati verkefnisins, en verkefnisstjóri Lýðheilsustöðvar styður hópinn í þeirri vinnu.
9) Skilti Heilsueflandi framhaldsskóla
Stýrihópur þarf að finna viðeigandi stað í skólanum til að hengja upp skilti verkefnisins (þ.e. viðurkenning á því að vera orðinn Heilsueflandi framhaldsskóli). Einnig þarf hann að finna geymslupláss fyrir vatnsbrúsa sem nemendur fá að gjöf í lok undirbúningstímabilsins og við formlegt upphaf verkefnisins í skólanum. (Nánari upplýsingar síðar.)
