Sími : 5 800 900
Stuðningsefni

Yfirlit yfir stuðningsefni

Auk þess að útbúnar séu handbækur fyrir heilsueflandi framhaldsskóla er einnig útbúið ýmislegt annars konar stuðningsefni sem Heilsueflandi framhaldsskólar geta nýtt sér.

Þess má geta að útlitshönnun á efni Lýðheilsustöðvar fyrir Heilsuseflandi skóla er í höndum Björgvins Ólafssonar, grafísks hönnuðar.

Skilti

Skilti afhjúpað með viðhöfn í Flensborgarskóla. Smellið á mynd til að stækkaÍ skólum sem eru orðnir formlegir þátttakendur í Heilsueflandi framhaldsskólum er hengt upp (með viðhöfn) stórt skilti sem segir að skólinn sé heilsueflandi framhaldsskóli.

Eftir því sem verkefninu miðar geta skólarnir öðlast brons, silfur og gullviðurkenningu sem fram kemur hjá skiltinu.

Fáni

Skólinn getur fengið fána með merki Heilsueflandi framhaldsskóla.Fáni heilsueflandi skóla dreginn að húni við Flensborgarskóla. Smellið á mynd til að stækka.

Vatnsbrúsar

Nemendur fá sérhannaða vatnsbrúsa með heilsuskilaboðum.

Límmiðar

Útbúnir hafa verið límmiðar fyrir samstarfsaðila, þ.e. þá í nærsamfélaginu sem taka þátt í heilsueflandi framhaldsskólastarfinu, s.s. verslanir, líkamsræktarstöðvar, veitingastaðir o.fl. Þeir geta límt miðana í glugga eða á annan áberandi stað í sínu fyrirtæki. Slíkt samstarf er jákvætt fyrir samfélagið í heild sinni, auk þess sem gera má ráð fyrir að viðskiptavinir leiti frekar til þeirra sem styðja heilbrigt líferni ungs fólks en annarra.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica