Sími : 5 800 900
Greinasafn

Hvenær þarf að gera lögregluskýrslu vegna slyss?

6.5.2005

Í sumum tilfellum getur slys á barni verið mjög kostnaðrsamt fyrir foreldra.

Verði barn fyrir slysi sem í samræmi við listann hér fyrir neðan er mikilvægt að foreldrar láti gera lögregluskýrslu um slyið.

Athugið ef hringt hefr verið á sjúkrabíl vegna barns sem slasast á leiksvæði þá kemur lögreglubíll með í flestum tilfellum og lögreglan tekur niður upplýsingar um barnið. Þetta er ekki lögregluskýrsla vegna slyss heldur vegna sjúkraflutnings. Það þarf að hringja í lögregluna á hverjum stað fyrir sig og biðja um að þessi skýrsla verði gerð. Skýrlsn heldur málinu opnu ef vandamál fara að koma upp hjá barninu síðar.

Eigandi leiksvæðissina er í sumum tilfellum með tryggingu sem myndi greiða fyrir kostnað sem verður vegna lækniskostnaðar hjá barninu. Stundum greiðir trygging eiganda einungis hluta af lækniskostnaði þá geta foreldrar í flestum tilfellum gert kröfu á sitt tryggingafélag en til þess þarf staðfestingu og það er lögregluskýrslan.

Leik-og grunnskólar, gæsluvellir, leiksvæði á vegum verslanna, hótela, matstaða og annarra hvort sem um tímbundin svæði sé að ræða eða ekki skulu sjá til þess að lögregluskýrls sé gerð.

1.  Höfuðhögg. Greining heilahristingur, brot, blæðing, bjúgur annað alvarlegt.

2.  Brunaslys ef meira en 8-10% af líkamanum eru brennd og sár eru djúp.

3.  Öll beinbrot.

4.   Alla tannáverka þar sem spurning er um að fullorðinstennur hafi skaddast.  Fullorðinstennur detta úr eða brotna.

5.  Alvarlegir augnáverkar

6.  Klemmuáverkar td. fingur fer af eða hangir á húðpjötlu.

7.    Öll alvarleg slys td. áverkar á innri líffæri, drukknun, umferðaslys.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica