Útgefið efni um tóbaksvarnir
Yfirlit
Hér er skrá yfir bækur, bæklinga, kennsluefni og rit sem gefin hafa verið út á vegum Lýðheilsustöðvar. Með því að smella á yfirskrift viðkomandi flokks er hægt að komast beint inn á pöntunarsíðu þess flokks og fá nánari útskýringu á efninu.
Margt er hægt að panta og fá sent, annað er eingöngu hægt að nálgast hér á vefsíðunni eða koma með því að koma á Lýðheilsustöð og skoða þar.
Flest efni Lýðheilsustöðvar er ókeypis - einungis þarf að greiða sendingarkostnað.
Bæklingar, bækur og hefti
Nú öndum við léttar - Reyklausir veitingastaðir, 1. júni 2007. Kynningarbæklingur sem gefinn var út vegna reykingabanns á veitinga- og skemmtistöðum. Bæklingurinn var ætlaður rekstraraðilum.
Reykingar og meðganga. Bæklingur um skaðsemi reykinga á meðgöngu, gefinn út í samstarfi Lýðheilsustöðvar og Miðstöðvar mæðraverndar. Hægt er að skoða bæklinginn á vef Lýðheilsustöðvar, en til að panta hann má hafa samband við Miðstöð mæðraverndar í síma 585 1400.
Bæklingurinn hefur verið þýddur á 7 erlend tungumál, og hægt er að skoða/prenta út textana.
Til foreldra, um börn og óbeinar reykingar, endurbætt útg. 2005. Upplýsingabæklingur ætlaður foreldrum.
Bæklingurinn hefur verið þýddur á 7 erlend tungumál, og hægt er að skoða/prenta út textana.
Hættu fyrir lífið. Sjálfshjálparbæklingur með ráðlegginum til reykleysis.
Konur og reykingar - 10 góðar ástæður fyrir því að hætta að reykja.
Til foreldra og forráðamanna - vegna fræðslu í 9. bekk
Vertu frjáls - vertu reyklaus. Kennsluefni fyrir 9. bekk,
Veggspjöld
Ekki segja sííísss! - Munntóbaksleikurinn 1
Veggspjald 1 sem tengist „munntóbaksleiknum“ í stærðinni A2
Ekki segja sííísss! - Munntóbaksleikurinn 2
Veggspjald 2 sem tengist „munntóbaksleiknum“ í stærðinni A2
Leiðbeiningar fyrir starfsfólk veitinga- og skemmtistaða.
Á veggspjaldinu er að finna upplýsingar um reykingalögin og hvernig skuli bregðast við séu lögin ekki virt.
Reykingar bannaðar
Stærðir A4 og A5
Tóbak má hvorki selja né afhenda þeim sem eru yngri en 18 ára
Stærði A4 og A5
Hvað finnst þér um reykingar? Stærð A2
Veggspjaldinu er ætlað að hvetja nemendur til að orða og setja fram sínar skoðanir á reykingum, og vera þannig betur í stakk búin að mæta þrýstingi til að byrja að reykja.
Eiturefni í sígarettum
Viðvörun! Stærð A2
Upplýsingar um hvaða efni eru í tóbaksreyk
Mamma ekki...! Stærð A3
Áhætta á meðgöngu ef móðir reykir.
Heilablóðfall hjá reykingamanni er sjaldnast tilviljun. Stærð A3
Stendur hjarta reykingamannsins næst. Stærð A3
Við vitum nú hve margar sígarettur þarf Stærð A3
Stendur þér... Stærð A3
Eiður Smári Guðjohnsen Stærð 50x70 sm
Ólafur Stefánsson Stærð 50x70 cm
Vertu frjáls reyklaus Stærð 50x70 cm
Slökktu í stubbnum Stærð A3
Borðspjöld og kort 
Borðspjöld fyrir reyklausa skemmti- og veitingastaði
Stærð 6,3 x 7 cm
Reykingar bannaðar
Veggspjald, stærð 11x30 CM
Reyklaust borð
Borðspjald, stærð 6,5x12 CM
Þetta er reyklaust heimili
Veggspjald, hægt að prenta út.
Þetta er reyklaust herbergi
Veggspjald, stærð 13,5x6,5 CM
Límmiðar
Reyklaus staður - bannmerki
Tóbak má hvorki selja né afhenda þeim sem eru yngri en 18 ára
Límmiði stærð A4, límmiði á rúðu stærð A5
Bannmerki - ýmsar stærðir og gerðir
Lifandi myndefni
Fáum aðstoð við að hætta að reykja
6 auglýsingar, hver þeirra 20 sek. að lengd
Tími til að hætta - Barn í vændum - Börn og óbeinar reykingar - Barn í bíl - Fyrirmynd - Hvað má bjóða þér?
Hver einasta sígaretta skaðar þig! Áhrif reykinga á:
lungu - hjarta - æxlismyndun - augu - heila
Tillitssemi kostar ekkert - tóbaksreykur drepur
Tryggjum öllum reyklaust umhverfi - þrjár auglýsingar
Þegar panta þarf margar tegundir útgefins efnis í einu
Athugið að ef skólar, heilsugæslustöðvar og aðrar stofnanir þurfa að panta mikið magn útgefins efnis í einu og margar tegundir, geta þeir útbúið heildarlista yfir pantanir og sent beint í tölvupósti á pantanir@lydheilsustod.is. Munið að tilgreina allar nauðsynlegar upplýsingar til að auðvelda afgreiðslu:
- - Útgáfunafn
- - Fjölda
- - Fullt nafn þess sem pantar
- - Kennitölu
- - Heimilisfang með póstnúmeri
- - Síma
- - Netfang
