MIKILL MISSKILNINGUR AÐ MUNNTÓBAK SÉ Í LAGI
Allir vita að reykingar eru skaðlegar heilsu fólks en það er nokkuð útbreitt að fólk telji munntóbak vera skaðlaust og jafnvel gott fyrir árangur í íþróttum. Mikilvægt er að leiðrétta þennan misskilning og halda á lofti því sem rétt er.
Munntóbak hefur slæm áhrif á heilsuna
Munnheilsa. Munntóbak veldur því að tennur gulna og skemmast, tannhold bólgnar og gómar rýrna. Við þetta
verður tannlos og mikil andfýla. Þeir sem nota munntóbak sjá breytingu á slímhúð í munni mjög fljótt en lýti af völdum krabbameins í munni eru einnig skelfileg.
Krabbamein. Í munntóbaki eru a.m.k. 28 þekktir krabbameinsvaldar og sumir í mun meira magni en í reyktóbaki. Sá sem notar 10 gr. af munntóbaki á dag fær t.d. í sig allt að þrefalt meira af ákveðnum krabbameinsvaldandi efnum en sá sem reykir 1 pakka af sígarettum á dag.
Hópur sérfræðinga Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) hafa nýlega ályktað að nægar sannanir séu fyrir því að munntóbak geti valdið krabbameini í munni og einnig brisi.
Hár blóðþrýstingur. Hjartavöðvinn er mikilvægasti vöðvi líkamans og þarf á reglulegu flæði blóðs að halda til að geta starfað eðlilega. Við notkun munntóbaks dragast æðarnar saman og eru æðarnar í kringum hjartað þar engin undantekning. Þrenging æða veldur því að blóðþrýstingur eykst og hár blóðþrýstingur er einn af helstu áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma – líka hjá ungu fólki.
Árangur í íþróttum
Margir hafa ánægju af því að hreyfa sig og stunda einhverja tegund íþrótta. Sumir hafa áhuga á að verða framúrskarandi keppnismanneskja, aðrir vilja bara vera með. Hvert sem er markmið íþróttaiðkunar þá er munntóbak ekki góður ferðafélagi.
Munntóbak hefur ekki jákvæð áhrif á árangur og er ekki jákvætt örvandi efni, eins og sumir halda. Hið sanna er að við munntóbaksnotkun þrengjast æðarnar í líkamanum og blóðflæði til vöðvanna minnkar. Vöðvarnir þurfa blóð til að vaxa og styrkjast en með munntóbaksnotkun hægist á þessum vexti og aukna styrk og verður árangur þjálfunar þar af leiðandi minni.
Þeir sem eru í mikilli þjálfun ættu líka að hafa í huga að notkun munntóbaks eykur hættu á meiðslum töluvert og erfiðara er að ná sér eftir meiðslin.
Ekki má gleyma að munntóbak er ekki síður ávanabindandi en sígarettur og því borgar sig ekki að prófa í þeirri trú að það valdi ekki fíkn.
Viljirðu hætta tóbaksnotkun þá geturðu fengið einstaklingsmiðaða ókeypis aðstoð í síma 8006030 alla virka daga milli kl. 17-19.
Jakobína H. Árnadóttir, MSc í heilsusálfræði
Verkefnisstjóri Lýðheilsustöð
Skoða bæklinginn: Óþægilegar staðreyndir um munntóbak
Lesa eldri grein: Misskilningur um munntóbak
| Viljirðu hætta tóbaksnotkun þá geturðu m.a. fengið einstaklingsmiðaða aðstoð í Ráðgjöf í reykbindindi 800 6030 alla virka daga milli kl. 17 og 19. |
|---|
