Reyklaus veitingahús - af hverju?
Rúm hálf öld er síðan fyrstu sannanir um heilsuskaðleg áhrif reykinga komu fram en nokkuð styttra er síðan sannað var að óbeinar reykingar séu einnig hættulegar heilsu manna.
Nú er þekkt að í reyk sem myndast við bruna tóbaks (hliðarreyk) er meira af skaðlegum efnum en í þeim reyk sem reykingamaður fær ofan í sig við sog (meginreyk). Þar sem reykt er innanhúss verður reykmengun því að stærri hluta til úr hinum hættulegri hliðarreyk.
Starfsfólk veitingahúsa í sérstakri hættu
Starfsfólk veitingahúsa er sá hópur fólks sem er hvað mest í reykmettu umhverfi. Rannsóknir sýna að fólk sem vinnur á bar en reykir ekki er með svipaða þéttni nikótíns í blóði og fólk sem reykir daglega. Þá sýna rannsóknir einnig að fólk sem vinnur á börum og veitingahúsum er í allt að 50% meiri hættu en aðrir að fá lungnakrabbamein. Ófædd börn þungaðra kvenna sem vinna í reykmettuðu umhverfi eru einnig í sérstakri hættu. Lítil fæðingarþyngd og fyrirburafæðing er algengari ef óbeinar reykingar hafa haft áhrif á móðurina á meðgöngu og hættan fyrir barnið eykst eftir því sem óbeinu reykingarnar eru meiri og tíðari.
Núverandi löggjöf um reyklaus svæði og loftræstingar er ekki nægjanleg því starfsfólk þarf að vinna á reyksvæðum jafnt sem reyklausum, reykur berst á milli reyksvæða og svæða sem eiga að vera reyklaus auk þess sem loftræstibúnaður ræður ekki við að hreinsa tóbaksreyk úr andrúmsloftinu.
Íslendingar færu jafnoft eða oftar á veitingastaði
Samkvæmt nýrri könnun árið 2004 reykja innan við 20% fólks á aldrinum 15-89 ára. Aðrar nýlegar kannanir sýna að meirihluti fullorðinna íslendinga er hlynntur alveg reyklausum veitinga- og kaffihúsum. Þær sýna að 86% svarenda færu jafnoft eða oftar á veitingastaði eða kaffihús væru þeir reyklausir. Aðeins 14% töldu að þeir færu sjaldnar. Athyglisvert er að 53% reykingafólks sagðist mundu fara jafnoft eða oftar á kaffihús og veitingastaði yrðu þeir reyklausir.
Í umræðu um reyklausa veitinga- og skemmtistaði koma gjarnan fram áhyggjur af hugsanlegum taprekstri og uppsögnum starfsfólks. Fjárhagsleg áhrif reykingabanns á veitinga- og skemmtistaði hafa verið skoðuð víða, t.a.m. í Bandaríkjunum, Ástralíu og Kanada, og er þar ekki að finna áreiðanlegar niðurstöður sem styðja þessar áhyggjur veitingamanna. Í New York borg, sem hefur bannað reykingar á veitingahúsum, jókst sala um tæp 9% fyrsta árið og 10.600 fleiri manns fengu starf í greininni, sem er mun meiri fjölgun en árin þar á undan.
