Sími : 5 800 900
Tóbak

Er þinn tími kominn?

30.12.2004

120stopMargir nota áramótin til að taka sig á og tileinka sér bættan lífstíl. Þessi tími getur til að mynda verið mjög góður til að hætta að reykja.

Hér á eftir koma nokkur ráð sem geta vonandi auðveldað þeim að hætta, sem ætla að hætta að reykja um þessi áramót, og að halda reykleysið út.

Fyrsta stig: Undirbúningur

Gott er að búa sig vel undir það að hætta að reykja.

Útvegaðu þér efni um tóbak, s.s. um skaðsemi þess fyrir þig og fólk í kringum þig.

Upp úr þessu efni er gott að skrifa niður 10 mikilvægustu ástæður þess að hætta. Einnig getur verið gott að hafa sínar eigin ástæður - því öll erum við jú misjöfn.

Reyklaus svæði:

Þegar ákveðið hefur verið að hætta er gott að byrja að fækka stöðunum þar sem reykt er, búa til reyklaus svæði. Þetta getur t.d verið heimilið, bíllinn o.s.frv. Reglan er að ef þú ert stödd/staddur á reyklausu svæði og löngunin er mikil, verður þú annað hvort að standast löngunina eða fara eitthvert annað. Hafðu svæðin sem flest til að brjóta upp vanann og þá verður baráttan auðveldari eftir að þú hættir.

Stuðningur:

Gott er að vita hvar er hægt að fá stuðning, ef þörf er á, áður en að dagurinn rennur upp.

       

Smelltu á myndina til að stækka

ÓKEYPIS SÍMAÞJÓNUSTA

  • Ráðgjöf í reykbindindi í síma 800 6030 er ókeypis símaþjónusta fyrir fólk sem vill hætta að nota tóbak. Þar starfa hjúkrunarfræðingar með sérþekkingu á tóbaksmeðferð. Þeir veita persónulega ráðgjöf, byggðri á reykingasögu þeirra sem hringja og þörfum hvers og eins. Þeir bjóða eftirfylgni, hvatningu og stuðning.
  • Á doktor.is er hægt að fá svör við fyrirspurnum um tóbaksnotkun.
  • Krabbameinsfélag Reykjavíkur heldur reglulega námskeið í reykbindindi. Næsta hefst 12. janúar 2005 (nánari upplýsingar á krabb.is).
  • Væntanlega getur heimilislæknirinn einnig aðstoðað.

Annað stig: Að hætta

Að hætta er mikil ákvörðun en hún er fljót að borga sig, fjárhagslega og heilsufarslega. Hér koma nokkur ráð til að styðjast við:

  • Hafðu listann yfir „hvers vegna þú ákvaðst að hætta“ alltaf við hendina.
  • Ef þú ákveður að nota níkótínlyf eða níkótínlaus lyf hafðu þau þá við hendina þegar þú ákveður að hætta og farðu eftir leiðbeiningum.
  • Fáðu þér staðgengla fyrir sígarettur. Misjafnt er hvað hentar hverjum og einum en hægt er t.d. að nota mentól í munnúða, lakkrísrót eða eitthvað annað. Forðastu að nota sætindi.
  • Safnaðu stubbum og ösku í krukku og helltu smá vatni yfir og settu lokið á. Opnaðu þegar löngunin kemur yfir þig og lyktaðu uppúr krukkunni.
  • Drekktu mikið af vatni og hreinum ávaxtasafa.
  • Ef þú tengir reykingar við sérstakar aðstæður, forðastu þær þá fyrst um sinn og prófaðu þig svo áfram. 

Mundu að þegar þú hættir að reykja skiptir hugarfarið öllu máli. Einbeittu þér alltaf að - og minntu þig á - jákvæðu hliðar þess að hætta og hættu að hugsa um að þú sért að pína þig eða getir þetta ekki.


Þriðja stig: Að halda út

Að halda sér reyklausum er breyting á lífstíl. Án efa tekur það á en þú getur þetta alveg - eins og allir hinir sem hafa hætt. Ef þú freistast til að fá þér eina sígarettu, líttu þá ekki á það sem að nú sé allt glatað. Haltu heldur áfram með jákvæðu hugarfari. Hafði ástæðurnar sem þú skrifaðir niður í undirbúningnum við hendina og minntu þig á þær reglulega.

Verðlaunaðu þig reglulega, vikulega, mánaðarlega, árlega. Þú átt það skilið!

 Ef þú ert ekki tilbúinn núna geymdu þá þessi ráð - þinn tími mun koma.

 

Jakobína H. Árnadóttir, M.Sc. í heilsusálfræði

Verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð

Frekari upplýsingar á: www.8006030.is, www.krabb.is, www.doktor.is

 

 

 

 



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica