Sími : 5 800 900
Tóbak

Vinningssaga Rutar Sigurðardóttur

19.8.2008

Upphafið af því að ég hætti að reykja var að ég hitti yndislegasta mann á jarðríki, varð yfir mig ástfangin og ákvað að eyða ævi minni með öðrum einstakling. Hann reykti ekki og einhvernveginn truflaði það mig alltaf að reykja í kringum hann. Tala nú ekki um að smella á hann kossi eftir að hafa reykt, ég fann að honum fannst það ekkert voðalega huggulegt, þó svo að hann segði aldrei neitt. Hann var þó búinn að nefna það við mig að honum þætti voða vænt um ef ég hætti að reykja. Það væri ekki síst mín vegna sem hann óskaði þess, þetta væri bara svo helv.... óhollt og ógeðslegt.

Jú ég var nú farin að leiða hugann að þessu stuttu eftir að við fórum að vera saman en einhvernveginn var ég ekki alveg til í þetta strax. Hafði alltaf sagt að ég myndi hætta að reykja einn daginn og það yrði alveg öruggt að ég myndi hætta þegar ég yrði ólétt. En svo fann ég smám saman að reykingar mínar voru farnar að hafa áhrif á líf okkar beggja. Hann þurfti sífellt að vera að taka tillit til mín og minna þarfa í kringum reykingar. Hann var farinn að benda mér á ljótan hósta sem ég var komin með, maður tekur ekki alltaf eftir því einn með sjálfum sér. Hann hefur gaman af útiveru og gönguferðum sem ég hafði mun minna úthald í að sinna en hann. Fannst það mjög leiðinlegt og sífellt ágerðist sú hugsun að ég þyrfti að fara að hætta þessu. Auk þess sat fast í mér setning sem afi minn sagði við mig þarna um sumarið „Rut mín, hættu nú þessum óþverra á meðan þú hefur tækifæri til. Ekki viltu enda eins og ég.“ Og afi minn er með lungnaþembu og mjög veikur sem rekja má til reykinga.

Svo kom að því að tækifærið til að hætta fyrir fullt og allt kom. Ég fékk að vita það að ég væri á leið í hálskirtlatöku og ég sá það nú að ekki gæti ég reykt í nokkurn tíma eftir þá aðgerð. Ég ákvað því að ég myndi hætta að reykja eftir aðgerðina. Og það var nú ekkert lítið sem maðurinn minn varð ánægður og já allir aðrir í kringum mig. Kom mér á óvart hversu jákvæð og góð viðbrögð ég fékk frá fólki í kringum mig.

Þannig að ef við drögum þetta aðeins saman þá er það þrennt sem hafði áhrif á ákvörðun mína að hætta að reykja.

1. Ástin er yndisleg og er manni ómetanlegur stuðningur þegar maður vill hætta að reykja. Allt fyrir ástina :)

2. Þurfti að fara í aðgerð og til að eiga möguleika á betri bata var ekki annað í stöðunni en að hætta að reykja. Ef ég gat hætt í 2 vikur þá var það alveg ljóst að ég hlyti að geta hætt þessu alveg.

3. Varnarorð afa míns sem þjáist af ýmsum kvillum sem rekja má til reykinga.

 

Ég hætti að reykja 23. september 2007 og hafði þá reykt í 11 ár. Hafði einu sinni áður reynt að hætta, fyrir um fimm árum síðan og það entist í um viku.

Ástæða reykinga:
Uhmm það er svolítið erfitt að svara þessari spurningu svona þegar maður er hættur að reykja og sér tilgangsleysið í þessum ósið. En hjá mér var það að mörgu leyti félagslegt, vinahópurinn reykti, skemmtilegt fólk í vinnunni sem reykti, hægt var að nota þetta sem afsökun fyrir ýmislegu eins og t.d. pásum í vinnunni. Einnig fannst mér bara rosa gott að reykja.

Hvaða aðferð beittir þú til að hætta reykingum?
Eins og fram hefur komið fór ég í hálskirtlatöku sem kom í veg fyrir að ég gæti reykt í nokkra daga. Aðrar aðferðir notaði ég ekki, engin lyf eða neitt svoleiðis. Stuðningur fólksins og jákvæð viðbrögð gerði mikið fyrir mig. Ég sagði öllum í kringum mig að ég væri hætt að reykja og hrósið sem ég fékk varð að mínu nýja nikótíni.

Finnst þér líf þitt hafa breyst frá því þú hættir?
Vá þvílíkar breytingar, maður getur nú ekki sagt annað. Maður hefur meiri tíma. Áður þá snérist allt um næstu sígó, hvenær var tími og tækifæri fyrir það. Hádegismaturinn í vinnunni varð skemmtilegri, maður þurfti ekki að gúffa í sig matnum til að hafa tíma til að fara niður að reykja. Og ég stóð alltaf í þeirri trú að það væri svo félagslegt að reykja, en ef maður pælir í því þá er mun félagslegra að reykja ekki. Maður eyddi meiri tíma með þeim vinnufélögum sem reykja ekki, það er miklu stærri hópur en þeir sem reykja. Eftir að reykingabannið tók gildi á veitinga- og skemmtistöðum finnst mér líka voðalega huggulegt að geta bara verið inni en að þurfa ekki að hírast úti í kuldanum og vetrarhörkum til þess eins að fá mér smók og koma svo inn með ský af vondri lykt í kringum mig.

Matur varð betri á bragðið, hefði ekki geta trúað því áður. Hóstinn hvarf, þolið jókst mjög fljótt. Ég fór að kyssa manninn minn meira og gerði það án þess að hugsa um hversu óaðlaðandi honum fyndist að kyssa mig. Peningar, peningar og aftur peningar - ég hætti að reykja þá sem betur fer.

Hvernig getur saga þín hvatt aðra til að hætta að reykja?
Mér tókst þetta með viljann að vopni, það er allt hægt ef maður ætlar sér það. Ég ætla ekki að sjá eftir þeim árum sem ég reykti eða ímynda mér hvað ég hefði geta gert fyrir peningana sem ég lét fuðra upp. Ég tók þessa ákvörðun á þessum tíma og er ótrúlega stolt af henni. Þetta var erfitt á köflum ég neita því ekki, en með svona yndislegt fólk í kringum mig sem studdi mig áfram og sagði mér endalaust hvað það væri stolt af mér var ótrúlegur styrkur.

Ég hefði ekki getað trúað þeim breytingum sem þetta hafði í för með sér. Maður veit að þetta er ekki hollt né gott fyrir mann en það er svo margt annað sem fylgir og ég nefndi hér í dálknum að ofan. Svo er það náttúrulega maðurinn í mínu lífi sem er svo stór partur af þessu hjá mér. Að mörgu leyti er það honum að þakka að ég hætti, hann var þó aldrei að pressa eða tuða í mér að hætta. Gaf mér tíma til þess að átta mig á því sjálf hversu mikilvægt það væri fyrir mig að hætta. Ómeðvitað fékk hann mig til að vilja hætta sjálf. Ástin færir manni ekki aðeins hamingju og gleði heldur einnig heilbrigðari lífstíl og líf án reykinga. Jeminn hvað mér líður vel í dag og hlakka til að takast á við framtíðina reyklaus og alsæl. Ég er heldur ekki lengur með þessa afsökun í farteskinu; „hætti að reykja þegar ég verð ólétt“ - ég er reyklaus og miklu betur í stakk búin líkamlega til að verða ólétt sem vonandi hlotnast okkur hjónum einn daginn. Mér finnst líka voðalega gott að vita til þess börnin mín alist upp í reyklausu umhverfi.

 



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica