Tóbak
Reyklaus veitingahús - Eftirlit og viðurlög
Margir spyrja hvernig eftirliti verði hátta að kjölfar nýrra laga um tóbaksvarnir sem gilda frá 1. júní 2007. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um eftirlit og viðurlög.
- Ef gestir kvarta þá sinnir heilbrigðiseftirlitið þeim kvörtunum
- Ef starfsfólk kvartar þá sinnir vinnueftirlitið þeim kvörtunum
- Rekstraaðili ber ætíð ábyrgð á því að fara að lögum.
Heilbrigðiseftirlit sveitafélaga
Ef kvartanir berast frá gestum vegna reykinga á veitingahúsum og tekur heilbrigðiseftirlitið við þeim
og sinnir:
- Heilbrigðisfulltrúi tekur við málinu og sinnir skv. verkferli.
- Viðkomandi rekstraraðili verður upplýstur um að kvörtun hafi borist óháð því hvort hægt er að staðfesta að kvörtunin eigi við rök að styðjast og því beint til hans að fara að lögum ef kvörtun er réttmæt.
- Þvingunaraðgerðir fara skv. VI. kafla í lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir
Vinnueftirlitið
Ef kvartanir berast frá starfsmönnum veitingahúsa vegna reykinga mun eftirfarandi ferli fara í gang:
- Atvinnurekandi fær fyrirmæli um að hlíta ákvæðum 6. gr reglna nr. 326/2007.
- Að öðru leiti mun eftirlit og eftirfylgni fyrirmæla fara fram með hefðbundnum hætti.
Rekstraraðilar
- Benda fólki á að það sé óheimilt að reykja samkvæmt lögum

- Vísa fólki á svæði utandyra
- Skv. 20gr. Tóbaksvarnalaga er umráðamanni húsakynna heimilt að veita aðila sem reykir inni á staðnum áminningu og vísa honum úr húsakynnum ef hann lætur ekki segjast
