Reyklaus veitingahús - Áhrif á rekstur og viðhorf viðskiptavina


Því er ekki að neita að einhverjir staðir í Noregi gengu verr eftir lagasetninguna en fyrir hana en þegar litið er til fleiri landa og horft á heildaráhrif kemur í ljós að ekki hafa komið fram nein áreiðanleg gögn sem gefa veitingamönnum tilefni til að hafa áhyggjur af þessu. Það hefur sýnt sig að í þeim löndum þar sem veitinga- og skemmtistaðir eru reyklausir hefur velta ýmist staðið í stað eða aukist í kjölfar lagasetningarinnar.
Viðhorf viðskiptavina sífellt jákvæðari
Lýðheilsustöð fól Capacent-Gallup að gera könnun í mars 2007 á viðhorfi landsmanna til reyklausra veitingahúsa. Þar kom fram að 74% svarenda voru fylgjandi því að allir veitinga- og skemmtistaðir verði reyklausir og þar af voru rúm 57% mjög hlynnt þessari breytingu. Þetta er töluverð aukning frá könnun sem gerð var í mars 2005 en þá voru um 60% svarenda fylgjandi reyklausum veitingahúsum.
Í könnuninni kom einnig fram að um og yfir 90% svarenda telja sig koma til með að fara jafn oft eða oftar á kaffihús, bari, veitingaog skemmtistaði þegar þessir staðir verða reyklausir. Þegar skoðaður er sérstaklega hópurinn sem sækir þessa staði oftar en einu sinni í mánuði kemur jafnframt í ljós að mun fleiri segjast ætla að fara oftar á þessa staði, eftir að lögin taka gildi, heldur en þeir sem ætla að fara sjaldnar.
Þessar niðurstöður benda til þess að veitingamenn þurfi ekki að óttast minni aðsókn gesta eftir að lög um reyklausa veitinga- og skemmtistaði verða að veruleika.
