Tóbak
Heilbrigt líf án tóbaks
Líf án tóbaks er ávísuna á heilbrigðara líf og betri heilsu. Þeir sem hætta að reykja, endurskoða oft ýmislegt fleira í lífinu í kjölfarið. Líkamlegt þrek eykst og margir byrja að stunda meiri útiveru og hreyfingu en áður. Tíminn til að gera eitthvað skemmtilegt er líka meiri því reykingarnar tóku töluverðan tíma. Með aukinni hreyfingu og úthaldi eykst oft áhugi á að bæta útlit og neyta hollari fæðu en áður. Hægt er að finna ýmsan fróðleik tengdan framangreindu hérna á heimasíðu Lýðheilsustöðvar.
Mikilvægt að neyta fæðu úr öllum flokkum fæðuhringsins
Fæðuhringurinn sýnir fæðuflokkana sex. Undirstaða holls mataræðis er að borða fjölbreyttan mat úr öllum fæðuflokkunum. Einnig er mikilvægt að borða margs konar mat úr hverjum flokki því hver fæðutegund hefur sína sérstöku samsetningu næringarefna. Lesa nánar um fæðuhringinn.
Hreyfihringurinn vekur athygli á fjölbreytilegum leiðum til hreyfingar
Aukin hreyfing eykur lífsgæði. Regluleg hreyfing stuðlar að lengri lífslíkum og hamingjuríkara lífi. Ávinningurinn er mestur fyrir kyrrsetufólk sem byrjar að stunda reglulega líkamsrækt. Lesa nánar um hreyfihringinn.
Sjá meira um hreyfingu.
