Æfingin skapar meistarann
Sú reynsla sem þú hefur öðlast við að reyna að hætta mun hjálpa þér til að átta þig á hvað gagnast þér og hvað þú þarft að varast.
Algengustu ástæður þess að falla í reykbindindi
- Héldu að þeir gætu fengið sér „aðeins eina” sígarettu.
- Gerðu sér ekki grein fyrir því hvað ýtti undir reykingar og „sofnuðu á verðinum”.
- Skipulögðu ekki hvernig þeir ætluðu að hætta.
- Höfðu ekki undirbúið hvernig þeir ætluðu að takast á við streitu og álag.
- Upplifðu erfiðleikatímabil eða áttu erfiðan dag.
- Þyngdust.
-
Hugsuðu um sjálfa sig sem fyrrum reykingamann, ekki reyklausan einstakling.
Reynsla þín ætti að gera þér auðveldara að greina og takast á við erfiðar aðstæður. Þú getur rifjað upp undirbúningslistann til að hjálpa þér að undirbúa þig til að takast á við freistingar.

Ef þú hefur fallið áður og hefur áhyggjur af því að það gerist aftur, gefðu þér þá aðeins lengri tíma til að undirbúa næstu tilraun. Hver tilraun hefur gefið þér dýrmæta reynslu sem þú þarft að nýta þér til að takast ætlunarverkið. Ekki gefast upp. Margir eiga að baki nokkrar tilraunir til að hætta áður en það tekst.
Neyðarúrræði - Ef þú hefur fengið þér sígarettu:
- Taktu ákvörðun um að hætta strax aftur.
- Hentu afgangnum af sígarettunni.
- Hringdu í vin eða stuðnings- eða fagaðila
- Farðu út eða í annað herbergi. Komdu þér úr aðstæðunum sem fengu þig til að reykja.
- Rifjaðu upp af hverju þú vildir hætta að reykja.
- Reyndu að takast á við „aðstæðurnar” án annarrar sígarettu.
-
Segðu við sjálfa/n þig „ég vel að reykja ekki”.

Manstu þegar þú féllst síðast?
Hver var aðdragandi þess? Hvað var á seyði? Hvað varst þú að gera og hugsa og hvernig leið þér þá? Reyndu að vera heiðarleg/ur við sjálfa/n þig um hvernig þér leið. Var það eins og fá sér fyrstu sígarettuna? Var það eins gott og þú áttir von á? Hjálpuðu reykingarnar þér að takast á við aðstæðurnar? Leið þér betur á eftir eða verr? Hugsaðu um þetta. Er einhver leið fyrir þig að bregðast við á annan hátt?
Hugsaðu um hve vel þér á eftir að líða þegar þú hættir. Þú munt vera reyklaus, heilbrigðari og hafa betri stjórn á lífi þínu. Þetta er langtímafjárfesting, vertu þolinmóð/ur og taktu einn dag í einu og vertu ánægð/ur með árangur þinn.
Heimild: Bæklingurinn Hættu fyrir lífið, gefinn út af Krabbameinsfélaginu, Lýðheilsustöð og Landspítala háskólasjúkrahúsi (2006). Hægt er að panta bæklinginn.
