Tekist á við fyrstu dagana
Lausn vandamála
- Vertu heiðarleg/ur við sjálfa/n þig, hver er vandinn í raun og veru?
- Hugsaðu um hvernig þú getur hegðað þér öðruvísi. Prófaðu það!
-
Ræddu vandamálið við einhvern sem þú treystir.
Tímastjórnun
- Forgangsraðaðu verkefnum dagsins.
- Skipuleggðu tíma þinn svo þú getir sinnt mikilvægustu verkunum fyrst.
-
Gerðu raunhæfa áætlun um að ná skamm- og langtímamarkmiðum þínum.
Settu sjálfa/n þig í forgang
- Gerðu eitthvað á hverjum degi einungis fyrir þig.
- Æfðu þig í að segja „nei” – og ekki finna til sektar vegna þess.
-
Gættu þess að hafa nægan tíma.
Slökun
- Notaðu 15 mínútur á dag aðeinsfyrir þig.
- Sestu á rólegan stað og dragðu djúpt að þér andann nokkrum sinnum.
- Farðu í sund, göngu eða taktu þátt í leikfimi.
- Hlustaðu á góða tónlist eða lestu góða bók.
Jákvætt hugarfar
- Settu peningana sem þú sparar í krukku og sjáðu seðlana safnast upp.
- Merktu við hvern reyklausan dag á dagatalinu.
-
Verðlaunaðu þig oft fyrir að vera

Það getur valdið streitu að hætta að reykja. Það tekur tíma að venjast því að vera án tóbaks og fyrir nýjar venjur að festast í sessi. Ekki búast við að geta breytt öllu þínu lífi í einni hendingu eða í fyrstu tilraun. Vertu góð/ur við sjálfa/n þig og mundu að það besta sem þú getur gefið sjálfri/sjálfum þér er að hætta reykingum.
Tekist á við freistingar
Það getur verið miserfitt að halda sig frá tóbakinu. Best er að vera búin/n að undirbúa áætlun til að takast á við erfiðar stundir eða staði sem vekja sterka löngun til að reykja. Mörgum finnst til að mynda erfitt að standast freistinguna í boðum, þegar áfengi er haft um hönd, í fríum eða á veitingastöðum. Skrifaðu niður hjá þér hvaða aðstæður þér finnast erfiðar? Hugsaðu um hvað hefur hjálpað þér áður og hvað ekki. Hugsaðu um hvað þú munir gera öðruvísi næst.
Heimild: Bæklingurinn Hættu fyrir lífið, gefinn út af Krabbameinsfélaginu, Lýðheilsustöð og Landspítala háskólasjúkrahúsi (2006). Hægt er að panta bæklinginn.
