Sími : 5 800 900
Tóbak

Áhrif reykinga á konur/karla

29.5.2006

Reykingar hafa ekki alltaf sömu áhrif á konur og karla, ýmsir kvillar tengjast öðru kyninu meira en hinu. Áður fyrr var lungnakrabbamein sjaldgæft meðal kvenna hérlendis en það veldur nú fleiri dauðsföllum en brjóstakrabbamein. Árið 2005 reyktu daglega um 19% Íslendinga á aldrinum 15-89 ára samanborið við tæp 30% upp úr 1990. Þótt reykingar séu öllum skaðlegar, þola konur reykingar síður en karlar.

konurKonur sem reykja auka líkur á:

  • Hjartaáfalli og heilablæðingu, sérstaklega ef þær nota samsetta getnaðarvarnarpillu.
  • Beinþynningu. Konur sem reykja 20 sígarettur daglega á fullorðinsárum hafa minnkað beinþéttni sína um 5–10% meira við tíðahvörf en kona sem ekki reykir.
  • Ótímabærum tíðahvörfum.
    konur_og meðganga

Konur sem reykja á meðgöngu auka líkur á:

  • Fósturlátum.
  • Að barnið fæðist fyrir tímann eða verði undir eðlilegri fæðingarþyngd.
  • Burðarmálsdauða og dauða barns á fyrstu mánuðum.

karlarKarlmenn og reykingar

  • Getuleysi er ein af minna þekktum afleiðingum reykinga. Fjöldinn allur af karlmönnum á fertugs- og fimmtugsaldri eru getulausir vegna beinna áhrifa reykinga.

 

 

Heimild: Bæklingurinn Hættu fyrir lífið, gefinn út af Krabbameinsfélaginu, Lýðheilsustöð og Landspítala háskólasjúkrahúsi (2006). Hægt er að panta bæklinginn.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica