Tóbak
Óbeinar reykingar
Að anda að sér tóbaksreyk annarra (óbeinar reykingar) getur einnig valdið krabbameini. Óbeinar reykingar eru bæði reykurinn frá reykingamanninum sjálfum og reykurinn frá logandi sígarettunni.
Rannsóknir sýna að fullorðnir sem eru útsettir fyrir óbeinum reykingum:
- Finna fyrir ertingu í augum, nefi og hálsi.
- Finna fyrir höfuðverk, svima og ógleði.
- Finna fyrir auknum ofnæmiseinkennum og astma.
- Eru í aukinni hættu á kransæðasjúkdómum.
Fyrir einstakling sem reykir ekki en hefur til langs tíma verið í reykmenguðu umhverfi geta líkurnar á að fá lungnakrabbamein aukist um 10–30%.
Samkvæmt rannsóknum eru börn sem alast upp í reykmenguðu umhverfi í meiri hættu á að:
- Deyja vöggudauða.
- Fá langvinnt kvef, nefrennsli og surg fyrir brjósti.
- Fá heilahimnubólgu.
- Fá endurteknar eyrnabólgur.
Rannsóknir sýna einnig að börn sem alast upp í reykmenguðu umhverfi eru:
- Helmingi líklegri til að fá astmaköst og öndunarfærasjúkdóma.
- Mun líklegri til að þurfa að leggjast inn á sjúkrahús á fyrstu æviárunum.
- Mun oftar fjarverandi frá skóla vegna veikinda.
- Börn reykingamanna eru mun líklegri til þess að byrja að reykja en önnur börn.

Heimild: Bæklingurinn Hættu fyrir lífið, gefinn út af Krabbameinsfélaginu, Lýðheilsustöð og Landspítala háskólasjúkrahúsi (2006). Hægt er að panta bæklinginn.
