Sími : 5 800 900
Tóbak

Aðstoð við að hætta að reykja

29.5.2006

Ýmsar leiðir eru í boði þegar aðstoð við að hætta að reykja er annars vegar. Má þar nefna faglega aðstoð innan heilbrigðiskerfisins, símaráðgjöf og námskeið ýmissa sjálfstætt starfandi aðila.

Fagleg aðstoð

Símaráðgjöfin Ráðgjöf í reykbindindi - 800 6030 er ókeypis símaþjónusta á landsvísu þar sem Radgjof_i_reykbindindi,_logo_og_simisérþjálfaðir hjúkrunarfræðingar veita fólki sem vill hætta að nota tóbak hvatningu, ráðgjöf og stuðning. Eftirfylgd er veitt þeim sem það vilja í formi endurhringinga. Sjá nánari upplýsingar á vefsíðunni www.8006030.is. Einnig er hægt að hafa samband með vefpósti á netfangið 8006030@heilthing.is

Heilsugæslustöðvar: Allir geta leitað til síns læknis, hjúkrunarfræðings eða ljósmóður til að fá aðstoð við að hætta að reykja. Á sumum heilsugæslustöðvum eru einnig haldin námskeið til að hjálpa fólki að hætta að reykja. Kannaðu málið á þinni heilsugæslustöð.

Á Miðstöð mæðraverndar Reykjavík, er hægt að panta tíma í Reykleysismóttöku fyrir verðandi foreldra sem vilja hætta að reykja. Allir sem leggjast inn á sjúkrahús eða endurhæfingarstofnanir eiga þess kost að fá aðstoð til reykleysis meðan á dvöl stendur.

Á Landspítala – háskólasjúkrahúsi er boðið upp á reykleysismeðferð fyrir inniliggjandi sjúklinga. Auk þess er starfrækt Reykleysismiðstöð á göngudeild A3 sem veitir stuðningsmeðferð og ráðgjöf í formi einstaklingsviðtala og eftirfylgdar í eitt ár.

Námskeið:

Ýmsir sjálfstætt starfandi aðilar bjóða upp á námskeið til að hætta að reykja.

Heimild: Bæklingurinn Hættu fyrir lífið, gefinn út af Krabbameinsfélaginu, Lýðheilsustöð og Landspítala háskólasjúkrahúsi (2006). Hægt er að panta bæklinginn.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica