Sími : 5 800 900
Tóbak

Undirbúningur

29.5.2006

Daginn sem þú hættir, munt þú þurfa að breyta hugarfari þínu og hegðun. Ef þér finnst þú þrufa hringdu þá í Ráðgjöf í reykbindindi 800 6030 eða hafðu samband við aðra fagaðila til að fá ráðleggingar um hvernig þú getur undirbúið þig. Þú getur einnig notað eftirfarandi lista til að hjálpa þér við undirbúninginn.

Ég mun forðast freistingar með því að:

  • Velja mér rólegan dag til að hætta.
  • Hvorki kaupa né vera með sígarettur.
  • Fjarlægja öskubakka, eldspýtur og kveikjara.
  • Halda mig frá áfengi fyrst um sinn.

Ég mun fá stuðning með því að:

  • Hafa samband við fagaðila svo sem Ráðgjöf í reykbindindi.
  • Ræða við fjölskylduna og vini mína um hvers vegna ég vil hætta.
  • Leita ráða hjá fyrrverandi reykingamanni. Fyrst hann gat það, get ég það líka!
  • Slást í lið með öðrum sem vilja hætta að reykja.

Ég mun breyta því hvernig ég hugsa um reykingarnar með því að:

  • Minna mig á að það er ekkert sem heitir „bara ein“ sígaretta.
  • Minna mig á af hverju ég vil hætta og hver ávinningurinn verður.
  • Minna mig á að það er ég sem ræð.
  • Takast á við einn dag í einu.

Ég mun takast á við löngunina með því að:

  • Draga andann djúpt nokkrum sinnum.
  • Drekka glas af vatni mjög rólega.
  • Nota eitthvað af þeim hugmyndum sem ég skráði niður á bls. 11.
  • Nota nikótínlyf eða nikótínlaus lyf (sjá bls. 21).
  • Muna að löngunin stendur stutt yfir en ávinningurinn af því að hætta endist út ævina.

Í fyrstu vikunni mun ég:

  • Prófa að fara aðra leið til vinnu, í búðina eða skólann.
  • Hafa nóg fyrir stafni og sinna nýju verkefni.
  • Halda mig á reyklausum svæðum.
  • Fara út og fá mér ferskt loft á hverjum degi.

Gott er að fá bæklinginn Hættur fyrir lífið sendan frá Lýðheilsustöð.Hættu fyrir lífið - bækllingur

Heimild: Bæklingurinn Hættu fyrir lífið, gefinn út af Krabbameinsfélaginu, Lýðheilsustöð og Landspítala háskólasjúkrahúsi (2006). Hægt er að panta bæklinginn.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica