Sími : 5 800 900
Tóbak

Hvers vegna reyki ég?

29.5.2006

Margir halda að sígarettur eða tóbak hjálpi þeim að slaka á og takast á við streitu en það er bara blekking. Nikótín verkar stutt og það gerir þig strekkta/n og þá teygir þú þig eftir þeirri næstu til að stöðva löngunina. Þetta er vítahringur. Það getur einnig verið streituvaldandi að þurfa að finna tíma og stað til að reykja.

Það eru ýmsar ástæður fyrir því að fólk byrjaði að reykja. hvers_vegna

Var einhver neðangreindra skýringa ástæða þess að þú byrjaðir að reykja? Á einhver þeirra við ennþá?

  • Til að líta út fyrir að vera eldri
  • Til að vera töff
  • Til að herma eftir vinum/fjölskyldu
  • Til að finnast ég fullorðin/n
  • Til að öðlast viðurkenningu
  • Af forvitni
  • Af því mig langaði til þess

Smelltu á eyðublaðið hérna til hægri og opnaðu PDF skjal sem hægt er að fylla út og prenta. Einnig er hægt að prenta það út autt og handskrifa.

Rifjaðu upp einhver af þeim skiptum sem þú þurftir að hætta því sem þú varst að gera til að reykja eða þegar þú gast ekki reykt t.d. í flugvél, á veitingastað eða heima hjá einhverjum.

godar_frettir

Heimild: Bæklingurinn Hættu fyrir lífið, gefinn út af Krabbameinsfélaginu, Lýðheilsustöð og Landspítala háskólasjúkrahúsi (2006). Hægt er að panta bæklinginn.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica