Hverning get ég hætt?
Kostir og gallar þess að hætta að reykja
Ef þú ert ekki alveg viss er gott að byrja á því að gera lista þar sem þú telur upp annars vegar kostina við að halda áfram að reykja og hins vegar ávinninginn af því að hætta. Berðu síðan listana tvo saman og athugaðu hvor rökin vega þyngra í huga þínum. Spurðu þig hvort þú sért tilbúin(n) til að hætta. Ef svarið er já, þá heldur þú áfram að vinna að því að hætta, ef svarið er nei, er gott að bíða aðeins og endurtaka leikinn síðar. Smelltu á myndina hér til hægri til að fylla út eyðublað og prenta út.
Reykingadagbók
Einnig er gott að færa upplýsingar um eigin reykingavenjur inn í dagbók, en hún mun hjálpa þér að átta þig á reykingavenjum þínum.
Reyndu að halda reykingadagbók í nokkra daga. Skilningur á hvenær og af hverju þú reykir og hvað þú getur gert í stað þess að reykja á þessum tímum mun hjálpa þér að komast í gegnum fyrstu dagana án tóbaks.
Smelltu á myndina hérna til vinstri til að opna dagbókareyðublað þú getur fyllt inn í það og prentað út, eða prentað það beint út og handskrifað á það.
Þú nærð bestum árangri með því að leita aðstoðar sérfræðinga í reykleysismeðferð. Rannsóknir hafa sýnt fram á að þeir sem leita sér faglegrar aðstoðar auka mikið líkur sínar á að ná árangri. Sjá nánar: Ráðgjöf í reykbindindi og námskeið til að hætta að reykja.
Heimild: Bæklingurinn Hættu fyrir lífið, gefinn út af Krabbameinsfélaginu, Lýðheilsustöð og Landspítala háskólasjúkrahúsi (2006). Hægt er að panta bæklinginn.
