Sími : 5 800 900
Tóbak

Hætt með aðstoð reykleysislyfja

26.5.2006

Í dag eru tveir flokkar lyfja sem hægt er að nota sér til aðstoðar við að hætta að reykja, nikótínlyf og nikótínlaus lyf.

Nikótínlyf (Nicorette® - Nicotinell®) fást í mörgum gerðum og verka þau öll á svipaðan hátt. Rannsóknir sýna að notkun nikótínlyfja tvöfaldar líkurnar á að þú náirað hætta að reykja. Þau hjálpa þér að komast yfir fráhvarfseinkennin. Nikótínlyf fara inn í líkamann á annan hátt en nikótínið úr sígarettunum og eru því mun minna vanabindandi. Nikótín veldur ekki krabbameini, það gera önnur efni í sígarettunni. Til að ná sem bestum árangri ættir þú að nota nikótínlyf í 10–12 vikur. Nikótínlyf er hægt að kaupa án lyfseðils í öllum apótekum. Mikilvægt er að lyfin séu notuð rétt. Fylgdu leiðbeiningunum á pakkanum og leitaðu til fagaðila ef spurningar vakna.

nikotinlyfjamedferd

Nikótínlaus reykleysislyf

Í dag er eru til tvö nikótínlaus lyf sem hjálpa til við að draga úr nikótínlöngun, þau heita Varenicline (Champix®) og Bupropion (Zyban®). Þessi lyf eru bæði lyfseðilsskyld.

Varenicline (Champix®) er nýtt lyf á markaðnum. Lyf sem var sérhannað til að aðstoða þá sem vilja hætta að reykja og er þróað sérstaklega til að hafa áhrif á nikótínfíkn. Það binst með mikilli sækni á nikótínviðtaka í heila og hefur þau áhrif að fráhvarfseinkenni og umbunin sem fylgir því að reykja verða mun minni. Árangursríkast er ef viðkomandi fær samhliða meðferðinni stuðning í formi reykleysisráðgjafar frá fagaðila. Lyfið er tekið í viku áður en reykingum er hætt og heildartími meðferðar er 12 vikur samtals. Ráðfærðu þig við lækninn þinn.

Frábendingar: Champix hefur engar þekktar milliverkanir við önnur lyf. Eina frábendingin við notkun lyfsins er ofnæmi fyrir einhverju af innihaldsefnunum. Algengasta aukaverkunin er ógleði, hún er mest í upphafi meðferðar en minnkar er líður á meðferð. Lyfið er ekki ætlað barnshafandi konum eða konum með barn á brjósti.

Bupropion (Zyban®) er lyf sem dregur úr fráhvarfseinkennum og löngun til að reykja. Það hefur hjálpað mörgum að hætta reykingum eða annarri tóbaksnotkun. Lyfið er tekið í 7–9 vikur. Fyrstu dagana meðan lyfið er notað má reykja en eftir að hafa tekið lyfið í 10–12 daga skal reykingum hætt. Zyban fæst einungis gegn lyfseðli og hentar ekki öllum og því er nauðsynlegt að ráðfæra sig við lækni áður en byrjað er að nota lyfið. Eins og nikótínlyfin verkar Zyban betur ef það er notað samhliða reykleysisráðgjöf.

Frábendingar: Zyban má ekki nota á meðgöngu eða meðan á brjóstagjöf stendur. Einstaklingar með flogaveiki, æxli í miðtaugakerfi, lotugræðgi eða lystarstol mega ekki nota lyfið. Ekki skal gefa þeim sem nýhættir eru notkun áfengis eða vissra róandi lyfja Zyban. Ekki má nota Zyban og sum geðlyf (MAO-hemla) samtímis. Ráðfærðu þig við lækninn þinn.

Nikótínlyfjameðferð

nikotintyggjoNikótíntyggigúmmí dregur strax úr tóbakslönguninni. Nikótínið fer í gegnum slímhúðina í munninum, út í blóðið og áfram til heilans þar sem það dregur úr fráhvarfseinkennum. Að tyggja hægt, hvíla (þá er tuggan geymd í kinninni milli þess sem tuggið er), tyggja hægt, verkar best. Annars fer nikótínið beint niður í maga og hefur engin áhrif á fráhvarfseinkennin. Rangri notkun fylgja aukaverkanir svo sem erting í hálsi, brjóstsviði og stundum magaóþægindi.

nikotinplasturNikótínplástur gefur samfelldan nikótínskammt. Með plástrinum berst nikótínið smám saman inn í gegnum húðina og dregur þannig úr tóbaksþörfinni. Hægt er að fá 16 og 24 tíma plástra og eru þeir til í þremur mismunandi styrkleikum. Sólarhringsplásturinn kemur í veg fyrir tóbaksþörf og er ætlaður þeim sem vakna á nóttunni til að reykja. Dagplásturinn (16 tíma) hentar þeim sem ekki reykja á nóttunni. Nýr plástur er settur á að morgni og þess gætt að setja plásturinn á mismunandi staði til að forðast ertingu á húð.

nikotintungurotTungurótartaflan er lítil tafla sem er sett undir tungu og þaðan frásogast nikótínið hægt á um þremur mínútum. Þú átt ekki að sjúga, tyggja eða kyngja töflunni þar sem það dregur úr virkni hennar og getur valdið aukaverkunum.

nikotinmunnsogstaflaMunnsogstaflan er eins og brjóstsykur sem þú sýgur hægt. Taflan er sogin þar til sterkt bragð kemur fram, þá er hún geymd í kinninni. Þegar dregur úr sterka bragðinu á að sjúga töfluna á ný. Hún gefur þér nikótín á sambærilegan hátt og tungurótartaflan.

nikotinnefudiNefúði er sterkasta gerð nikótínlyfja sem er í boði. Nikótínið frásogast hratt um slímhúð nefsins og hentar því vel þeim sem finna fyrir miklum fráhvarfseinkennum eða reykja mjög mikið. Nefúðinn getur valdið staðbundinni ertingu í nefi til að byrja með, en það líður fljótt hjá.

Innsonikotininnsogsmunnstykkigslyfið er í plaströri sem er sett í munnstykki. Það er sogið á svipaðan hátt og sígaretta. Nikótínið frásogast um slímhúð í munni á svipaðan hátt og tyggigúmmíið en berst ekki til lungnanna. Þar sem það líkir eftir reykingaathöfninni tekur það bæði á líkamlegu og andlegu fráhvarfi

Heimild: Bæklingurinn Hættu fyrir lífið, gefinn út af Krabbameinsfélaginu, Lýðheilsustöð og Landspítala háskólasjúkrahúsi (2006). Hægt er að panta bæklinginn.


 

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica