Sími : 5 800 900
Tóbak

Reykingar og heilsa

11.4.2006

Í stuttu máli má segja að tóbaksneysla flýti öldrunarferlinu í flestum vefjum og líffærum líkamans. Tóbak hefur truflandi áhrif á ýmsa mikilvæga líkamsstarfsemi, dregur smám saman úr þoli og skerðir viðnám gegn veikindum. Það veldur ótímabærri hrörnun líkamans og getur valdið lífshættulegum sjúkdómum, svo sem krabbameini, hjarta- og æðasjúkdómum og langvinnum lungnasjúkdómum.

Reykingar urðu ekki almennar fyrr en skömmu fyrir fyrri heimsstyrjöldina og hér á landi ekki fyrr en á árum síðari heimsstyrjaldar. Samfara þessari geysimiklu aukningu reykinga hefur risið alvarlegt heilbrigðisvandamál. Undanfarna áratugi hefur verið sýnt fram á með margvíslegum vísindalegum rannsóknum að reykingar eiga sök á sjúkdómum sem valdið geta ótímabærri örorku, og jafnvel dauða, og ennþá bætist við þann sjúkdómaflokk sem rekja má að einhverju leyti til reykinga.

Krabbamein

Lungu og öndunarfæri

Hjarta og æðakerfi

Frjósemi

Munnur og meltingarkerfi

Skynfæri og önnur líffærakerfi



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica