Sími : 5 800 900
Tannheilsa

ÞITT ER VALIÐ - veggspjald um áhrif drykkja á tannheilsu

15.2.2011

Eitt af hlutverkum Lýðheilsustöðvar er að fræða og veita fólki upplýsingar um það sem hefur áhrif á heilsu. Upplýsingunum á veggspjaldinu Þitt er valið er ætlað að beina athygli fólks að innihaldi drykkjarvara og áhrifum þess á eyðingu glerungs tannanna – ekki síst hjá börnum og ungmennum en unglingar drekka t.d. mjög mikið af gosdrykkjum. Samkvæmt könnun RÍN (2003-2004) drekka 9 ára börn að meðaltali tæplega 2,5 lítrar á viku af gosdrykkjum og sætum svaladrykkjum og 15 ára unglingar tæplega 4 lítrar á viku.

Þitt er valið - mynd af veggspjaldi. Smellið á myndina til að stækka.Upplýsingarnar á veggspjaldinu eru settar fram á myndrænan hátt þannig að sem flestir skilji þær, jafnvel þeir sem ekki kunna íslensku til fullnustu, sem og til að hjálpa fólki að muna hvað er í hverjum drykk þegar kemur að því að velja sér drykkjarvöru.

Lengst til vinstri er „sýrustigsmælir“ (pH). Því lægra sýrustig, því verra fyrir tannheilsuna. Efst á mælinum (blátt) eru drykkir sem hafa engin slæm áhrif en því neðar sem dregur (rautt) því verri eru áhrifin. Drykkir á litafletum með sama lit og mælirinn sýnir endurspegla þessi áhrif; textaborðar við hvern litaflöt skýra þetta enn frekar, þ.e.:

  • Blátt = Engin hætta á eyðingu tannglerungs
  • Blágrænt = Lítil hætta á eyðingu tannglerungs
  • Gult yfir í rautt = Hætta á eyðingu tannglerungs.

Að auki er sýnt magn sykurs eða annarra sætuefna í drykkjunum í gula-rauða fletinum; því lengra til hægri, því meiri sykur.
Og stjarna fyrir ofan drykk táknar að í honum er koffín.

Drykkjarvörurnar

Sýndar eru vinsælustu drykkjarvörurnar á markaðnum árið 2010, skv. mælingum Capacent-Gallup.

Vífilfell

Ölgerð Egils Skallagrímssonar

Þess má geta að á meðan á vinnslutíma veggspjaldsins stóð opnaði ný gosdrykkjaverksmiðja, Klettur, þar sem forsvarsmenn segjast m.a. leggja mikla áherslu á að framleiða drykkjarvöru þar sem sérstaklega er gætt að því að innihald drykkjanna skaði ekki tannheilsu neytendanna.

Innihaldslýsingar

Rannsóknarstofa tannlæknadeildar Háskóla Íslands sá um að mæla sýrustig drykkjarvaranna en sykurinnihald er lesið af innihaldslýsingu og næringargildismerkingu þeirra, sem og frá ÍSGEM gagnagrunninum, eftir því sem við á.

Panta veggspjald

Veggspjaldinu var dreift á stofnanir um allt land en sé óskað eftir eintaki þá er hægt að panta beint í gegnum vefinn

Ítarefni

Hér eru tenglar í fræðsluefni sem tengist umfjöllunarefninu:

Glerungseyðing tanna

Hvað borða íslensk börn og unglingar?

Heilsa og líðan skólanema 2006 (bls. 28)

Hvað hentar börnum best að drekka?

Nammidagur – hugum að sykurmagninu

Mikilvægt að fylgjast með koffínneyslu barna

Fróðleikur um koffín

Glerungseyðandi drykkir á íslenskum markaði

Grein um áhrif orkudrykkja í Pediatrics, feb. 2011

 

 

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica