Tóbak og tannheilsa

Tóbak hefur veruleg áhrif á heilbrigði tannanna og munnsins. Hér fræðsluefni um tannheilsu og reykingar og tannheilsu og munntóbaks-notkun.
Tannheilsa, munntóbak og reykingar
Tóbaksnotkun hefur áhrif á tannheilsuna. Langvarandi reykingar geta haft þau áhrif að tennurnar gulna og hætta er á tannholdssjúkdómum sem erfitt getur verið að lækna.
Munntóbak
Talið er að notkun á reyklausu tóbaki hafi aukist verulega á undanförnum arum, sérstaklega hjá ungu fólki.
Reyklaust tóbak er samheiti yfir þær tegundir tóbaks sem er tuggið eða tekið í vör eða nös:
- skro – heil tóbaksblöð sem eru tuggin
- snuff eða snus – blöðin mulin í duft og tekin í nefið eða sett undir vör
Ef munntóbak er notað í langan tíma þá getur það haft mikil og slæm áhrif á munnheilsuna. Tennur gulna og hætta er á að fá ýmsa munnsjúkdóma. Í munntóbaki eru sætuefni sem geta valdið tannskemmdum og ertandi efni sem geta valdið óafturkræfum skemmdum á tannholdi og slímhúð.
Áhrif tóbaksnotkunar á tannheilsu
Vissirðu þetta um reykingar og munntóbak: |
|
Munntóbaksleikur
Með því að fara í Munntóbaksleikinn er hægt að læra heilmargt um munntóbak og áhrif þess á heilsuna. Að auki er reglulega yfir árið hægt að vinna miða á valdar bíómyndir.
Smelltu á myndina til að opna Munntóbaksleikinn
Að hætta tóbaksnotkun
Hægt er að fá góða hjálp við að hætta tóbaksnotkun – sem kostar ekkert – með því að skrá sig á vefsíðuna reyklaus.is eða hringja í Reyksímann 8006030. Umsjón með þessari hjálp hefur fagfólk sem hefur sérhæft sig í að hjálpa fólki að hætta tóbaksnotkun – og með því að fá hjálp eru mun meiri líkur á að það takist að hætta heldur en að reyna að hætta hjálparlaust.
Einnig eru hér sérstakar leiðbeiningar fyrir þá sem vilja hætta munntóbaksnotkun.
Þrepin 5 til að hætta
Ýmislegt er hægt að gera til að undirbúa sig undir að hætta en gott er að skilja betur hvað það er sem gerist hjá manni þegar maður vill er að íhuga að breyta um hegðun, s.s. að hætta að nota tóbak. Smellið á hnappinn til að lesa meira.



