Sími : 5 800 900
Tannheilsa

Tannáverkar - Fullorðinstennur

25.1.2010

Skyndihjálp við áverka á fullorðinstennur (annað gildir oft um barnatennur). Hægt er að bjarga mörgum tönnum með því að bregðast rétt við.

Við áverka á fullorðinstennur er mögulegt aðtonn_brotnar bjarga þeim ef þú veist hvað á að gera við högg eða slys. (Um barnatennur er meira hér)

EF TÖNNIN BROTNAR:

  • Finndu öll tannbrotin
  • Farðu strax til tannlæknis
    Neydarvakt-tannlaekna

Oftast er hægt að líma tannbrotin á tönnina ef brugðist er fljótt við.


 

EF TÖNNIN DETTUR ALVEG ÚR:Tannrót og tannkróna

  • Finndu tönnina strax
  • Haltu bara um tannkrónuna, ekki rótina
  • Ef tönnin er óhrein, skolaðu hana þá örstutt með köldu vatni
  • Gerðu síðan eitt af þessu:

A. Reyndu að setja tönnina aftur í holuna (það er langbest)

B. Ef þú getur ekki sett tönnina aftur á sinn stað, settu hana þá í mjólk – alls ekki í kranavatn (kranavatn minnkar líkur á að hægt sé að bjarga tönninni)

C. Ef þú kemst hvergi í mjólk, settu tönnina þá í munninn milli kinnar og tanna, en passaðu vel að hún hrökkvi ekki ofan í þig.

 

Farðu STRAX til tannlæknis. Best er að komast til tannlæknis á innan við klukkutíma.

 Reyndu_að_setja_tönn_sem_dettur_úr_aftur_í tannstæðið

MUNDU:

MJÓLK – ekki vatn – fyrir úrslegnar tennur. Sýrustig mjólkur er miklu nær sýrustigi munns en kranavatn og batahorfur tanna sem geymdar hafa verið í mjólk eru því miklu betri.

Farðu STRAX til tannlæknis. Því fyrr sem tannlæknir kemst í málið, þeim mun meiri líkur eru á að hægt sé að líma upp tannbrotin eða bjarga tönn sem hefur dottið úr.

Athugaðu að leita ALLTAF ráða hjá tannlækni SEM FYRST eftir alla áverka á tennur.

Líka ef tönn er laus eða beinið í kringum tennurnar er aumt.

 

Neydarvakt-tannlaekna Upplýsingar um neyðarvakt tannlækna á höfuðborgarsvæðinu - helgaropnun og bakvakt

Hér fyrir neðan eru tvö PDF-skjöl með leiðbeiningum um skyndihjálp:

Tannáverkar - myndrænt
Hentar vel yngra fólki
 Tannáverkar
Texti og tvær skýringamyndir
Tannáverkar   Tannáverkar-skyndihjálp smámynd

 

 

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica