Sími : 5 800 900
Tannheilsa

Mjólk og sykur

19.5.2009

Gosskattur heilbrigðisráðherrans hefur valdið mörgum hugarangri.

Páll Baldvin Baldvinsson skrifar

Gosskattur heilbrigðisráðherrans hefur valdið mörgum hugarangri. Í þessari litlu skattlagningu á sætmeti sem framleitt er í verksmiðjum og á heimilum landsins felst að viti margra mikilvæg skerðing á lýðréttindum. Þar sé seilst enn í átt til forræðishyggjunnar og spurt er eðlilega hversu langt löggjafarvaldið sem aumur þjónn framkvæmdarvaldsins á nú að ganga í því sem samkvæmt pólitískum kokkabókum er kallað að hafa vit fyrir fólkinu. Og mörgu er saman að jafna: hertri og mjúkri fitu, tóbaki og áfengi; allskyns vörur sem fólk leggur sér til munns eru sannarlega samkvæmt vestrænni þekkingu, víðtækum rannsóknum, óhollusta. Og því miður er regluverk okkar ekki í fullu samræmi: margt sem er óhollt er leyft, annað bannað eða takmarkað.

Ef litið er á björtu hliðarnar og umræðan skoðuð í ljósi vaxandi birtu og sumargleðinnar sem nú fer heit um allt þjóðfélagið, má spyrja: er auðfengið sætmeti sem ekki má skattleggja nú ekki frestun á skattheimtu sem um síðir verður að fylgja fram? Sá sem gúffar sig út í dag á skattlausu sætmeti mun um síðir leggjast með fullum þunga á samfélagið sem sjúklingur og þá verður að greiða niður þann kostnað sem sætamaukið hefur valdið honum. Að ekki sé talað um félagslega kostnaðinn.

Um öll Vesturlönd fitnar fólk meira en góðu hófi gegnir. Við þurfum ekki að líta til Noregs þar sem sykurskatturinn er gildur: í Bretlandi ræddu stjórnvöld fyrr á þessu ári í alvöru hvernig spyrna mætti gegn yfirvofandi samfélagslegri hættu af ofáti fitu og sykurs sem mun valda ómældum þjáningum neytenda og vaxandi samfélagslegum kostnaði. Frelsið til að éta sykur er á kostnað annarra - á endanum.

Sykurvæðing í manneldi er allsráðandi: ekki þarf annað en líta til innlendra mjólkurafurða sem eru fáar án sætuefna. Mjólkursamsalan er enda sögð mesti sykurinnflytjandi í landinu og hafa menn haft á orði að einkennisstafir hennar, MS, standi í raun fyrir mjólk - og sykur.

Meðalhófið er best en því miður hefur langvinnur áróður fyrir hollari matarvenjum, víðtæk kynning á því hvað sykur og fita er mikil óhollusta, ekki komið í veg fyrir að offita er vaxandi vandamál hér eins og víðar.

Sykuruppnámið nú og gosskatturinn komast í fréttir og umræðu nú fyrir viðvaranir tannlækna vegna vaxandi skemmda í tönnum barna sem vilja ná samningi við ríkið um tanneftirlit og viðgerðir á orðnum skemmdum. Og hvað svo: byrjendanámskeið fyrir foreldra í tannþrifum, endurmenntun fyrir þá sem bera ábyrgð á tannskemmdum barna sinna, ókeypis dreifing á tannburstum, tannþráðum og tannkremi? Og hvað myndu andstæðingar forræðishyggjunnar segja þá? Menn geta ekki í einu orði þusað yfir gosskatti og í hinu litið hjá skaðanum sem sykur veldur - og skattfénu sem eytt verður í náinni framtíð til að bæta þann skaða. Það er ábyrgðarlaust og vanhugsað lýðskrum.

Gosið í sykurumræðunni hefur þann kost að það gefur okkur í fásinni sumarsins tækifæri til að skoða og spjalla um hættur þeirrar velmegunar sem við höfum vanist um langt skeið og reynist okkur á endanum svo hættusöm.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica