Sími : 5 800 900
Tannheilsa

Skilvirk skimun tannskemmda

- Tannheilsa segir til um menningarstig þjóðar -

14.5.2009

Hefði ég efni á að gefa öllum íslendíngum tannbursta, mundi ég gera þjóðinni meira gagn en þótt ég skrifaði handa henni ódauðleg ljóð," sagði Halldór Laxness í Alþýðubókinni.
Eftir Steinunni Stefánsdóttur.

Hefði ég efni á að gefa öllum íslendíngum tannbursta, mundi ég gera þjóðinni meira gagn en þótt ég skrifaði handa henni ódauðleg ljóð," sagði Halldór Laxness í Alþýðubókinni sem út kom árið 1929 og enn áttatíu árum síðar er tannheilsa Íslendinga mörgum áhyggjuefni.

Tannheilsa manna er enda eitt af mörgu sem gefur til kynna menningarstig þjóðar og nú ber svo við að eftir að tannheilsa Íslendinga hafði batnað verulega undanfarna áratugi og var orðin sambærileg tannheilsu annarra Norðurlandabúa bendir allt til þess að henni sé að hraka að nýju.

Velta má fyrir sér hvers vegna tannheilbrigðisþjónusta lýtur ekki sömu lögmálum og önnur heilbrigðisþjónusta. Vissulega þarf að sinna viðhaldi á tönnum með öðrum hætti en gegnir um aðra hluta líkamans. Hitt er annað að tannskemmd er í raun eins og hver annar sjúkdómur sem fólk leitar sér lækninga við.

Á fáeinum áratugum tókst að stórbæta tannheilsu Íslendinga, aðallega með fræðslu um mikilvægi tannhirðu en einnig með því að tannlæknaþjónusta fyrir börn var ókeypis, og sem ekki skipti síður máli, að það náðist til allra barna gegnum skólatannlækningakerfið. Það er líklega ekki síst niðurlagning þess sem nú er að koma í bakið á þjóðinni.

Það vegur einnig þungt að tannlæknaþjónusta er ekki lengur ókeypis fyrir börn. Hún á að vísu að heita að vera endurgreidd að þremur fjórðu. Raunin er hins vegar sú að viðmiðunargjaldskrá endurgreiðslnanna hefur ekki þróast í takti við raunveruleikann þannig að raunendurgreiðsla er að líkindum talsvert undir helmingi útlagðs kostnaðar vegna tannlæknaþjónustu við börn.

Á tímum eins og nú er óhægt að biðja um aukin útgjöld vegna tannlæknaþjónustu við börn. Samt sem áður ætti það að vera markmið að tannlæknaþjónusta við börn sé endurgjaldslaus og að þangað til því markmiði verði náð sé að minnsta kosti miðað við raunhæfa gjaldskrá tannlækna þegar endurgreiðsla er reiknuð.

Færa má rök fyrir því að ekki sé skynsamlegt að reka fullbúnar tannlæknastofur innan veggja grunnskólans. Hvergi næst þó til allra barna nema einmitt þar og innan veggja skólans fer fram heilbrigðisskoðun. Það hlýtur að koma til álita að fella reglulega tannskoðun inn í þá skoðun. Barnið færi svo heim með skilaboð á sama hátt og til dæmis ef það er ekki talið sjá eða heyra nægilega vel.

Tannskemmdir eru meðal algengustu sjúkdóma mannfólksins. Andstætt kvefpest læknar tíminn ekki tennurnar. Því er öflug fræðsla um áhrif tannhirðu og mataræðis á tannheilsu, skipulögð og skilvirk skimun á tannskemmdum ásamt aðgengilegri, ódýrri og helst endurgjaldslausri lækningaþjónustu við tannskemmdum grundvallaratriði ef við ætlum aftur að ná því að vera í sama flokki og nágrannaþjóðirnar þegar kemur að tannheilsu.

Það hlýtur þó að koma nokkuð spánskt fyrir sjónir að þjóðin standi frammi fyrir slíku tiltektarverkefni beint í kjölfar mestu hagsældarára Íslandssögunnar.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica