Sími : 5 800 900
Tannheilsa

Tennurnar eftir góðærið

12.5.2009

Hjálparvakt tannlækna sinnti 61 barni á laugardag, sum þeirra höfðu aldrei áður farið til tannlæknis. Tannheilsu barna hefur hrakað undanfarinn áratug. Barnaverndarmál, segir prófessor. „Skemmdirnar sem við sjáum hér komu ekki með bankahruninu, svona tekur mörg ár að myndast,“ segir Inga B. Árnadóttir forseti Tannlæknadeildar Háskóla Íslands.


Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath [hjá] mbl.is

„Skemmdirnar sem við sjáum hér komu ekki með bankahruninu, svona tekur mörg ár að myndast,“ segir Inga B. Árnadóttir forseti Tannlæknadeildar Háskóla Íslands. Inga er ein þeirra tannlækna sem hafa verið í forsvari fyrir Hjálparvakt tannlækna, samstarf Tannlæknafélags Íslands og Tannlæknadeildar Háskóla Íslands. Hjálparvaktin bauð börnum og unglingum fría tannlæknaþjónustu í þriðja sinn á laugardaginn. Gríðarleg aðsókn hefur verið í öll skiptin, en á laugardaginn sinntu tuttugu tannlæknar í sjálfboðavinnu 61 sjúklingi og komust færri að en vildu.

Mörg þeirra barna og unglinga sem nutu tannlæknaþjónustu í þetta skiptið hafa ekki farið til tannlæknis í mörg ár. Dæmi voru um ung börn, 5-6 ára, sem aldrei höfðu farið til tannlæknis.

Panódíl fyrir svefninn

„Þetta er ekki bara tannheilbrigðismál, þetta er barnaverndarmál,“ segir Sigfús Þór Elíasson prófessor við Tannlæknadeild HÍ. „Hér eru börn sem sofna ekki án þess að fá panódíl fyrir svefninn vegna tannverkja. Slíkt myndi aldrei líðast ef barnið væri með beinbrot eða aðra sjúkdóma.“

Rannsóknir Sigfúsar hafa leitt í ljós að tannheilsa barna var komin í svipað horf og á öðrum Norðurlöndum árið 1996. Samkvæmt MUNNÍS-rannsókninni, sem framkvæmd var árið 2005, eru íslensk börn hins vegar með tvöfalt fleiri skemmdar tennur en börn annars staðar á Norðurlöndum. Sigfús segir að tannlæknar hafi ítrekað bent á vaxandi vandamál í tannheilsu barna undanfarin ár.

Margir sérfróðir álíta að framferði stjórnvalda á þessu sviði hafi verið gjörsamlega úr takti við þessar niðurstöður akademískra rannsókna. Endurgreiðsla hafi t.a.m. ekki fylgt verðlagsþróun og hinn aukni kostnaður vegna tannlæknaþjónustu hvetji því ekki foreldra til að sjá til þess að börnin fái nauðsynlegar viðgerðir og eftirlit.

„Það er ekki hægt að þvinga foreldra til að nýta læknisþjónustu sem þeir þurfa að borga fyrir,“ segir Ingibjörg S. Benediktsdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands. Tannlæknaþjónusta eigi að sitja við sama borð og önnur læknisþjónusta, ekki síst þar sem sýkingar vegna tannskemmda geti auðveldlega breiðst út til nærliggjandi líffæra.

Áhyggjuefni en ekki óvænt

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félagsmálaráðherra heimsótti Hjálparvaktina og sagði ástandið mikið áhyggjuefni en því miður væri það ekki óvænt.

„Það voru mistök hjá stjórnvöldum undanfarin ár að draga úr þátttöku í tannvernd barna. Ég benti ítrekað á það og það var vitað mál að þetta hefði afleiðingar.“ Ásta segir ljóst að það þurfi að bregðast við og ræða við heilbrigðisráðherra. Ögmundur Jónasson leit inn á Hjálparvaktina fyrir rúmum tveimur vikum, ásamt Svandísi Svavarsdóttur.

Tannáta hjá 17 ára unglingi - fyrir hreinsun Tannáta hjá 17 ára unglingi - eftir hreinsun 
Hér er 17 ára piltur sem man ekki hvenær hann fór síðast til tannlæknis, mikil tannsýkla og tannáta. 
Mynd: Inga B. Árnadóttir, fengin af www.mbl.is
Viðgerð: Tannáta hreinsuð og lokuð en meðferð ekki lokið.
Mynd: Inga B. Árnadóttir, fengin af www.mbl.is

Stjórnvöld íhugi stöðuna

Inga B. Árnadóttir segir stjórnmálamenn vissulega hafa fengið áfall við að sjá ástandið og verið sammála um að það verði að gera eitthvað.

„Við í Tannlæknafélaginu og Tannlæknadeild Háskóla Íslands höfum ákveðið að veita þessa þjónustu nú í apríl og maí. Svo viljum við gefa stjórnvöldum tíma til að hugsa málið yfir sumarið, um hvernig skuli bregðast við ástandinu,“ segir Inga að lokum.

Í hnotskurn

» Um 17% barna og unglinga á aldrinum 4-18 ára mæta ekki í reglubundið eftirlit hjá tannlækni, skv. MUNNÍS-rannsókninni sem framkvæmd var árið 2005.
» Tannheilsa íslenskra barna er í 6. neðsta sæti af OECD-löndunum.
» Hjálparvakt tannlækna verður aftur hinn 23. maí nk. í Læknagarði.
        

Enginn sem fylgist með tönnunum 

ERFITT er að gera við tennur sem hafa fengið að skemmast í friði árum saman. Hjálparvakt tannlækna hefur á laugardagsvöktum sínum aðeins haft takmarkaðan tíma til að sinna þeim sem þangað koma.

Ingibjörg S. Benediktsdóttir segir að áherslan sé lögð á að sinna því nauðsynlegasta. Þegar um miklar skemmdir er að ræða er reynt að koma í veg fyrir að þær dafni enn frekar.

Langflest íslensk börn bursta tennur bæði kvölds og morgna þó notkun á tannþræði sé heldur ábótavant. Of mörg börn og unglingar eru hins vegar án eftirlits tannlækna. Ingibjörg bendir á að í grunnskólum fylgist skólahjúkrunarfræðingur með hæð, þyngd og sjón barna en enginn sérfróður skoði tennurnar. Jafnvel þótt í ljós komi að eitthvað sé að tönnunum, þá skorti eftirfylgni, þ.e. að séð verði til þess að barnið fái þá tannlæknaþjónustu sem það þarf á að halda.

Jafnvel hefur borið við að foreldrar haldi að í skólunum sé tannlæknaþjónusta og komi af fjöllum þegar í ljós kemur, að svo er yfirleitt ekki. 

 

      

Í háttinn grátandi af verkjum 

„ÞETTA er óásættanlegt, bæði sá fjöldi sem þarf á aðstoðinni að halda og ástandið á tönnunum, það þarf engan sérfræðing til að sjá það,“ segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu. „Þetta er stórkostlegt framtak hjá tannlæknum að veita þessa hjálp og um leið opna augu okkar sem störfum að málefnum barna. Hér eru greinilega börn sem fara í háttinn grátandi af verkjum.“ Bragi segir að ekki sé hægt að fría stjórnvöld frá ábyrgð vegna þessa.

„Við myndum aldrei sætta okkur við svona ástand á öðrum sviðum [innan heilbrigðisgeirans]. Þetta snýst um rétt barnsins til að þroska og dafna eðlilega, að það þurfi ekki að stríða við heilsubrest sem fylgi því til fullorðinsára. Svo virðist sem menn hafi haldið að sér höndum, ef til vill ekki gert sér grein fyrir hvernig staðan væri.“

Bragi segist ekki vilja trúa öðru en að viðbragða sé að vænta hjá stjórnvöldum. Barnaverndarstofa muni bregðast við með einhverjum hætti, sem þurfi þó að kanna nánar. Ætla má þó, að Barnaverndarstofa beini því til viðeigandi aðila að vera vakandi yfir þessum þætti, með fjárstuðningi ef með þarf. Bragi segir nauðsynlegt að skoða fleiri en eina leið í þessu máli. Til dæmis má kanna að koma á fót frekari forvörnum og eftirliti með tannheilsu í skólum, í tengslum við tilvísanakerfi.

      

„Ástandið ekki sæmandi okkar þjóð“ 

Þessi þjónusta mætti líka vera í boði á landsbyggðinni, rétt eins og Blóðbankabíllinn.“ Móðir sem lagði af stað kl. 7 að morgni og var komin í Læknagarð rúmlega níu. Hjálparvaktin opnaði kl.10.

-----

„Maður hefur auðvitað ekki ráð á þessu [tannlæknaþjónustu], hvað þá með nokkur börn.“ Móðir tveggja unglinga á meðan annar þeirra var hjá tannlækninum.

-----

„Tannlæknafélag Íslands og tannlæknadeild Háskóla Íslands bjóða nú á laugardaginn, 9. maí, barnafjölskyldum sem búa við kröpp kjör upp á fría tannlæknaþjónustu í þriðja sinn.“ Fréttatilkynning frá Hjálparvakt tannlækna.

-----

„Hér er engum vísað frá vegna peninga, við skoðum ekki skattframtöl foreldra.“ Ingibjörg S. Benediktsdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands.

-----

„Þetta er svakalega gott framtak hjá tannlæknunum. En mér finnst að grunnskólabörn eigi að fá fría tannlæknaþjónustu.“ Móðir sem mætti með son sinn rúmlega níu, áður en Hjálparvaktin var opnuð.

-----

„Ég man að árið 1996 borgaði ég undir þrjú þúsund krónum fyrir skoðun. Nú síðast borgaði ég hátt í tólf þúsund krónur.“ Móðir með son sinn á unglingsaldri, sem ætlaði að koma eftir tvær vikur með yngri börnin.

-----

„Þau eru mjög almennileg, tannlæknarnir, og bjóða mann velkominn. Ég kann vel að meta það.“ Þriggja barna móðir sem flutti til Íslands fyrir rúmum áratug.

-----

„Við vorum eiginlega alveg miður okkar eftir síðustu vakt, ástandið var alveg skelfilegt á sumum börnunum og okkar þjóð ekki sæmandi.“ Ingibjörg S. Benediktsdóttir.

-----

„Ég er ekki alveg viss hvenær hann fór síðast til tannlæknis, því miður. Það hefur mikið gengið á.“ Tveggja barna móðir á meðan hún beið eftir syni sínum sem sat í tannlæknastólnum. 

 


Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica