Tannheilsa
Ókeypis forvarnaskoðun 3, 6 og 12 ára barna
Nýverið gekk í gildi samningur sem tryggir börnum á ákveðnum aldri ókeypis tannskoðun. Þriggja, sex og tólf ára börnum stendur nú til boða ókeypis eftirlit hjá tannlæknum sem vinna í umboði Sjúkratrygginga Íslands, samkvæmt samningi frá 1. janúar 2009 sem gildir til 31.desember 2010.
Nauðsynlegt er að skoðun fari fram áður en þriggja ára barn verður fjögurra ára, sex ára barn verður sjö ára og tólf ára barn verður þrettán ára. Tannviðgerðir falla ekki undir þennan samning.
Listi yfir tannlækna sem eru með aðild að samningi við Sjúkratryggingar Íslands um forvarnarskoðun.
.
Upplýsingar um forvarnarskoðun, pdf-skjal til útprentunar
