Söngtextar fyrir börn á leikskólaaldri
og á yngsta stigi grunnskóla
Yfirlit
Mjólk er góð
Lag: Vilhjálmur Guðjónsson
Mjólk er góð, fyrir káta krakka,
kynjaþjóð, bæði álfa og tröll.
Mjólk er góð, girnileg að smakka,
glöð og rjóð þá við verðum öll.
Mjólk er góð fyrir mig og þig.
Mjólk er góð.
Ég og þú, vinir skulum vera,
vaxa hratt og verða myndarfólk.
Að bursta vel, það er um að gera,
brosandi við drekkum mikla mjólk.
Mjólk er góð fyrir mig og þig.
Mjólk er góð
Gef mér D!
Déééé!
Gef mér kalk!
Kalk?
Ójá, fyrir tennur og bein!
Ég heiti Dreitill og hér er ég mættur
og ætla bara að minna á þetta tvennt:
Ójá! Tvö glös á dag!
Ég er sérstaklega D-vítamínbættur
og ekki nema eitt og hálft prósent.
Ég er svalur Dreitill!
Dreitill er svalur!
Fyrir tennur og bein! Ójá!
Ójá! Fyrir tennur og bein!
Ég er svalur Dreitill!
Tvö glös á dag
fyrir tennur og bein!
Mmm, ó já!
Ó já!
Tönnin mín
lag: Signir sól
Tönnin mín, tönnin mín
tönnin mín er hvít og fín.
Burstuð hún alltaf er
bæði þar og hér.
Borða góðan hollan mat
á tönnina ekki kemur gat.
Tönnin mín, tönnin mín
alltaf hvít og fín.
Tönnin er með gati hér
grátandi hún líka er.
Burstuð hún ekki var
hvorki hér né þar.
Karíus á henni sat
og hjó í hana stærðar gat.
Tönnin er með gati hér
grátandi hún er.
Höfundur texta er Þuríður Sigurðardóttir
leikskólakennari Krílakoti, Dalvík.
