Sími : 5 800 900
Tannheilsa

Glerungseyðing tanna

1.2.2008

Hin síðari ár hefur í vaxandi mæli orðið vart við eyðingu glerungs af yfirborði tanna. Hún orsakast af sýru sem situr við yfirborð tannanna og leysir upp glerunginn. Sýran kemst í munninn eftir mörgum leiðum og er fyllsta ástæða fyrir alla að gera sér grein fyrir þeim þáttum sem því valda.

Gler

Fleiri greinar um glerungseyðingu
 Glerungseyðing - vaxandi vandi íslenskrar æsku
 Glerungseyðing tanna
 Glerungseyðandi drykkir á íslenskum markaði

 

Hver eru áhrif sýrueyðingar?

Greina má glerungseyðingu á því að glerungsfletir tungumegin á tönnum eyðast. Form tannanna breytist og oft verður vart meiri kulvísi. Fyllingar í jöxlum virðast rísa upp yfir glerunginn sem áður var þeim jafnhár. Glerungur framtanna eyðist mun hraðar að innanverðu og verða tennurnar þá mjög þunnar í bitkantinn og fer jafnvel að brotna eða flísast úr þeim.

Nokkrar myndir sem sýna glerungseyðingu

Image1

gler_fyll

 intrins

intrinsic_erosion_TW

Glerungurinn hefur eyðst af bitfleti tannanna og skín í bert tannbeinið.

Glerungurinn hefur eyðst af bitfleti tanna svo að fylling rís yfir glerung

Glerungurinn hefur eyðst af innanverðum framtönnunum. Við það þynnist tönninn og á auðveldar með að brotna.


Orsakir glerungseyðingar

Í fyrstu var talið að orsaka glerungseyðingarinnar væri eingöngu að leita í súru magainnihaldi sem ropað væri upp í munninn. Þetta getur vissulega átt sér stað en er mun sjaldgæfara en talið var. Neysla súrra drykkja er hins vegar talin einn af stærstu orsakaþáttum glerungseyðingar í dag, sérstaklega meðal barna og unglinga.

Stuðpúðavirkni munnvatns

Munnvatnið gegnir stóru hlutverki við að breyta sýrustigi munnsins og draga úr skaðsemi þess. Í heilbrigðum einstaklingi getur munnvatnið aðlagað sýrustig þannig að uppleysiáhrif súrra drykkja sé í lágmarki. Þetta nefnist stuðpúðavirkni. Í rannsókn á einstaklingum sem voru með glerungseyðingu kom í ljós að liðlega helmingur þeirra hafði lélega stuðpúðavirkni munnvatns.

Sýrustig í drykkjum

Með breyttum neysluvenjum hefur glerungseyðing orðið meira áberandi. Þegar vatn og mjólk voru okkar helstu drykkjarföng og súrir ávextir sjaldgæfari var hættan á glerungseyðingu mun minni. Kannanir sýna að um 30% þess vökva sem landsmenn neyta er í formi gosdrykkja. Auk þess hefur neysla ávaxtasafa, bæði hreinna og blandaðra, aukist verulega.

Að hafa gos við hendina og dreypa á allan daginn hefur mun verri áhrif á tennurnar en að þamba drykkinn á stuttum tíma. Einnig ber að hafa í huga að ávaxtasafar eru mjög súrir. Sítrónusýra hefur til dæmis svipað sýrustig og flestir gosdrykkir og hefur eiginleika til að leysa upp glerung.
Vatn, mjólk og undanrenna valda engum skaða á glerungi tannanna.

Ert þú í áhættuhópi?

Nauðsynlegt er að vera meðvitaður um áhrif þeirra drykkja og fæðutegunda sem við neytum daglega. Sért þú í áhættuhópi vegna sýrueyðingar, skaltu ræða það við tannlækninn þinn. Uppgötvist skaðinn tímanlega finna tannlæknar oftast leiðir til að bæta hann, en lagfæringarnar jafnast þó sjaldnast á við upprunalegt ástand tannanna.

Fimmti hver unglingur er talinn vera með glerungseyðingu á byrjunarstigi

Rannsókn sem Inga B. Árnadóttir lektor gerði árið 1997 og var kynnt á norrænu tannlæknaþingi sama ár leiddi í ljós að fimmti hver unglingur á Íslandi væri með glerungseyðingu á byrjunarstigi.

 

panta_vatnsskiltiVatn er besti drykkurinn við þorsta og það skemmir ekki glerung tanna. Hægt er að panta sérstök skilti sem hvetja til vatnsdrykkju. Smellið á mynd af skiltinu til vinstri.

 

 



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica