Glerungseyðing - vaxandi vandi íslenskrar æsku
Vísindastarf í þágu þjóðar
- Orsök glerungseyðingar er efnafræðilegt ferli, óháð örverum, þar sem glerungur tannanna tærist burt lag fyrir lag.
- Glerungseyðing greinist hjá 30% 15 ára unglinga og eru piltar í meiri áhættu (37%) en stúlkur (23%).

- Glerungseyðing mælist hjá nær tvöfalt fleiri piltum en stúlkum.
Þetta er hærra hlutfall en áður hefur komið fram í rannsóknum á íslenskum unglingum og tíðni glerungseyðingar hefur aukist um 10% á undanförnum tíu árum hjá þessum aldurshópi. Umræddur aldurshópur drekkur að meðaltali tæpan lítra af gosdrykkjum á dag.
Fyrri rannsóknir benda til þess að þeir sem drekka gosdrykki þrisvar sinnum í viku eða oftar séu þrisvar sinnum líklegri til að greinast með glerungseyðingu en þeir sem ekki drekka gosdrykki.
Mikil og tíð gosdrykkjaneysla ógnar tannheilsu íslenskrar æsku
Þegar gosdrykkir með eða án sykurs leika um tennuranr oft á dag eykst hættan á glerungseyðingu. Glerungseyðing er sársaukalaus í fyrstu og erfitt að greina hana en á seinni stigum fylgir henni mikill sársauki þar sem glerungsyfirborðið verndar ekki lengur skyntaugar tannanna. Rannsóknir benda til þess að ætandi áhrif gosdrykkja á tennur tengist rotvarnarefnum og hugsanlega fosforsýrunni sem í þeim er, en hana er ekki að finna í kolsýrðum vatnsdrykkjum. Sýran tærir eða eyðir glerungi tannanna og glerungurinn kemur ekki aftur.
U
m er að ræða vaxandi tannheilsuvanda hjá þjóðinni sem veldur miklum sársauka og kallar oft á vanda- og kostnaðarsöm lækningaúrræði.
Í vöruþróun á gosdrykkjum mætti leggja aukna áherslu á að draga úr þekktum aukaverkunum þeirra á tannglerung og þar gætu gosdrykkjaframleiðendur lagt hönd á plóginn. Öflugt samstarf framleiðanda og vísindamanna er hér lykilatriði.
Skorað er á framleiðendur gosdrykkja að hafa hollustu og heilbrigði að leiðarljósi í vöruþróun til framtíðar. Á sama tíma og ríkisstjórnin samþykkir niðurfellingu á matarskatti og tollum á gosdrykkjum þá er líklegra að gosdrykkjaneyslan aukist enn meira í takt við ódýrara verðlag.
Dr. Inga B Árnadóttir forseti tannlæknadeildar Háskóla Íslands
Greinin birtist í Morgunblaðinu í Tannverndarviku 2007, en hún stóð yfir dagana 29. janúar - 2. febrúar
