Sími : 5 800 900
Tannheilsa

Íslenski unglingurinn og sykurpúkinn

23.4.2007

Siggi er 17 ára og er í menntaskóla. Hann er rosalega mikill sykurfíkill. Um níu leytið á morgnana fer hann að verða órólegur ef hann hefur ekki fengið sykur í einhverju formi, verður orkulaus og geðvondur, jafnvel örlar á höfuðverk ef það dregst fram að hádegi að fá sér eitthvað sem inniheldur sykur. ,,Sykur, sykur” hvíslar sykurpúkinn á öxlinni á honum.

Best finnst Sigga að fá sér gosdrykk strax klukkan átta áður en hann fer í fyrsta tíma og ekki seinna en í fyrstu frímínútunum um níu leytið. Umm, yndisleg tilfinning þegar gosið leikur um tennurnar og tunguna og rennur mjúklega niður hálsinn.,, Rop, rop, ahhh.” Eftir að hafa hangið í tölvunni fram eftir í gær og vaknað dauðþreyttur í morgun hressist hann allur við. Finnur hvernig orkan streymir um líkamann. Sykurpúkinn er sæll og glaður.

Siggi hefur aldrei verið mikið fyrir að borða morgunmat, hefur ekki lyst svona snemma dags, borðar oft snakk frameftir á kvöldin. Löngufrímínútur. Farinn að finna fyrir smáhungri. Best að fá sér gos og snúð enda ódýrari en samlokan. Mjúkur og sætur, ætti að duga fram að hádegi. Siggi brosir til Möggu sem gengur framhjá. Tennurnar eru súkkulaðibrúnar eftir glassúrinn og hann skolar honum niður með gosinu. ,,Rop rop ahh.” Siggi er hættur að geispa og hann og strákarnir tala saman um nýjustu myndina sem þeir ,,downloaduðu” og World of Warcraft sem þeir spila á netinu.

Í hádeginu er Siggi orðinn svangur en það er lítið inni á debetkortinu.,,Shit.” Tvö snickers og hálfslíters gosdós bestu kaupin. Helmingi ódýrara en langloka. Siggi situr í setustofunni með strákunum og snickersin renna ljúflega niður með drykkjarföngunum og sykurpúkinn strýkur á sér magann alveg að springa. Tíminn flýgur og bjallan hringir inn í tíma. Siggi stendur upp og gengur í átt að skólastofunni. Skyndilega finnur hann fyrir verk í kjálkanum. Það er eins og sé verið að stinga prjón í gegnum höfuðið á honum og inn í tennurnar. Þetta er slæmt. Siggi hættir við að fara í tíma. Verkurinn ágerist og Siggi er ráðþrota en smám saman rennur upp fyrir honum ljós. Hann tekur upp gemsann og hringir.,,Mamma, þetta er Siggi. Ég held ég sé kominn með tannpínu”.

Kæra ungmenni. Hann Siggi er ekki í góðum málum og neysluvenjur hans eru slæmar. Tennur okkar eru dýrmætar og engar tannlækningar trompa hönnun skaparans. Þær þurfa að endast alla ævi og ekki er sjálfsagt að gera við þær eða skipta út eins og varahlut í bíl. Sælgætisneysla og gosdrykkja er skaðleg tönnunum og ávísun á tannskemmdir. Þú tapar tönnum, peningum og fallegu brosi.

Segðu sykurpúkanum stríð á hendur. Sveltu hann í hel. Ekki láta hann stjórna lífi þínu. Farðu reglulega til tannlæknis og láttu skoða tennur þínar. Fáðu kennslu í munnhirðu og leiðbeiningar um mataræði. Tannlæknirinn og tannfræðingurinn taka vel á móti þér og fræða um allt sem þú þarft að vita til að halda tönnum þínum heilum og heilbrigðum.

Elísabet Kjerúlf, tannfræðinur.

Greinin birtist í Fréttablaðinu í Tannverndarviku 2007, en hún stóð yfir dagana 29. janúar - 2. febrúar



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica