Sími : 5 800 900
Tannheilsa

Munnþurrkur

15.1.2007

Munnþurrkur getur komið fram við ákveðna sjúkdóma eða sem aukaverkun við töku vissra lyfja. Munnþurrkur einkennist af sviða í munni og erfiðleikum við tal, tyggingu og kyngingu. Tennur skemmast hraðar og vandamál geta skapast í slímhúð munns og tannholdi. Tíðni sveppasýkinga eykst og munnþurrkur torveldar notkun gervitanna.

Hæfileg munnvatnsframleiðsla (>0.3 ml/mín óörvuð; >0.7 ml/mín örvuð) hefur mikið að segja fyrir góða líðan og viðheldur heilbrigði munnsins en munnvatnið smyr og skolar munninn, stuðlar að réttu sýrustigi í munninum og inniheldur verndandi efnasambönd fyrir tennur og umhverfi þeirra.

Ákveðnir sjúkdómar geta valdið munnvatnsþurrð eða munnþurrki auk þess sem t.d. hár hiti, vannæring og fasta draga úr munnvatnsframleiðslu. Lyfjameðferð og geislameðferð við krabbameini getur valdið munnþurrki auk þess sem áverkar eða sjúkdómar í munnvatnskirtlunum skerða munnvatnsframleiðslu. Munnþurrkur er algeng aukaverkun við töku vissra lyfja.

Munnþurrkur einkennist af sviða í munni og erfiðleikum við tal, tyggingu og kyngingu. Við langvarandi munnþurrk breytist samsetning munnflórunnar, tennur skemmast hraðar og aukin vandamál skapast í slímhúð munns og tannholdi. Einnig torveldar munnþurrkur notkun gervitanna.

Geislameðferð á andlits- og hálssvæði getur valdið tímabundnum eða langvinnum munnþurrki. Geislameðferð getur haft þau áhrif að mjög dregur úr munnvatnsframleiðslu eða hún stöðvast nær alveg. Ákveðin krabbameinslyf geta einnig valdið munnþurrki. Lyfin hafa þau áhrif að munnvatnsframleiðsla minnkar í munnvatnskirtlum og munnvatnið

breytist og verður þykkt og seigt og virkar því ekki sem skyldi.

Lyfin hafa einnig skaðleg áhrif á frumur í munnslímhúð auk þess sem tímabundin fækkun verður á hvítum blóðkornum. Einkennin sem koma fram eru einstaklingsbundin og m.a. háð lyfjategund, hvernig lyfið er gefið, skammtastærð og fjölda lyfjameðferða. Oftast verður vart við einkenni í munnholi 7-14 dögum eftir lyfjameðferð. Munnþurrkur veldur því að munnurinn er útsettari fyrir sýkingum og tennur skemmast frekar. Erfitt er að fyrirbyggja munnþurrkinn en ýmislegt er hægt að gera til að bæta líðan.

Eftirlit og skoðun

Sérstök ástæða er til að vera í reglulegu eftirliti hjá tannlækni ef breyting hefur orðið á munnvatnsframleiðslu svo viðhalda megi heilbrigðu ástandi í munnholi.

Munnhirða og tannvernd

Góð munnhirða er alltaf mikilvæg en hún er ennþá mikilvægari ef munnþurrkur er til staðar. Mjög mikilvægt er að drekka mikið af vatni

og skola oft munninn með volgu vatn. Tannburstun er einfaldasta og áhrifaríkasta leiðin til að fjarlægja sýkla og matarleifar af tönnum. Mælt er með því að nota mjúkan tannbursta sem endurnýja þarf reglulega og flúortannkrem. Bioténe Dry Mouth Toothpaste og Zendium saliva tannkrem hafa bakteríudrepandi áhrif, innihalda flúor og örva munnvatnsframleiðslu. Best er að skola ekki munninn með vatni eftir tannburstun, það nægir að skyrpa. Þannig verkar flúorinn lengur til varnar tannskemmdum. Ef skolað er, er mælt með því að setja örlítið tannkrem aftur á burstann, og bursta létt yfir tennurnar í lokin. Mikilvægt er að hreinsa milli tannanna með tannþræði einu sinni á dag og nauðsynlegt að beita lagni til að særa ekki viðkvæmt tannholdið. Sápuefni í tannkremi getur haft ertandi áhrif á viðkvæma munnslímhúð í kjölfar geisla- og/eða lyfjameðferðar og því er mælt með Zendium tannkremi og Zendium saliva tannkremi þar sem þau eru sápulaus. Mælt er með því að nota bakteríudrepandi munnskol sem ekki innihalda alkohól, t.d. Bioténe munnskol. Gott ráð er að tyggja sykurlaust tyggjó í u.þ.b. 10 mínútur eftir máltíð til að örva framleiðslu munnvatns (t.d. Extra, V6 eða Bioténe). Mælt er með því að nota varasalva til að mýkja þurrar varir.

Framleidd eru "háskammta-flúor" tannkrem, sérhönnuð fyrir einstaklinga sem hætt er við tannskemmdum. Unnið er að því að bæta aðgengi almennings að slíkum tannkremum.

 

Fæðan

Erfitt getur reynst að neyta fastrar fæðu vegna verkja í munni og vegna bragðskynsbreytinga. Til að örva munnvatnsframleiðslu er þó mikilvægt er að borða mat sem þarf að tyggja. Þó ber að forðast mjög harða, þurra, kryddaða og súra fæðu. Fæðan þarf að vera hitaeininga- og próteinrík og heppilegt getur verið að borða oft og lítið í einu. Mælt er með því að hafa alla fæðu við stofuhita. Hafraseyði er mjög gott auk þess sem það hlífir slímhúðinni. Mælt er með því að drekka mikið af vatni eða ósætum/ósúrum drykkjum, a.m.k. 8 glös á dag. Góð regla er að hafa alltaf drykk við höndina og súpa oft á. Kolsýrðir drykkir geta þurrkað og ert slímhúðina. Aldrei ætti að nota sætindi til að lina munnþurrk. Gosdrykkir og ávaxtadrykkir, sætt tyggigúmmí, brjóstsykur og annað sælgæti veldur tannskemmdum á undrahröðum tíma. Ráðlagt er að takmarka neyslu á koffíni og alkóhóli.

 

Örvun munnvatnsframleiðslu

Til að örva munnvatnsframleiðslu er mælt með því að tyggja sykurlaust tyggjó t.d. Extra, V6 og Biotene tyggjó. Í lyfjabúðum fæst einnig flúorbætt tyggjó (t.d. Fluorette). Einnig er mælt með því að sjúga sykurlausar bragðtöflur og sérstaklega er mælt með Xerodent – munnsogstöflum sem eru flúorbættar. Profylin munnsogstöflur örva munnvatnsframleiðslu þó ekki séu þær flúorbættur og Profylin hlaup inniheldur flúor og hefur reynst afar gagnast einstaklingum með eigin tennur og gervitennur til að milda einkenni munnþurrks.

 

Rakagefandi efni - gervimunnvatn

Mikilvægt er að drekka mikið af vatni og skola ört munninn með volgu vatni. Einnig er ráðlagt að nota gervimunnvatn sem fæst í lyfjabúðum (Biotene/Oral Balance; Zendium saliva munnskol, spray og gel; Saliva Orthana) auk þess sem munnsogstöflur (Profylin, Xerodent) gagnast vel.

Gott getur verið að smyrja Profylin eða Oral Balance smyrsli (hlaupi) á munnslímhúð fyrir svefn til að tungan límist síður við góminn og mýkja varir með varasalva eða vaselíni. Einnig geta umrædd efni dregið úr óþægindum í slímhúð undir gervitönnum. Efamol (næturprimrósa-olía) hefur einnig gefið góða raun gegn munnþurrki.

 

Laus tanngervi – gervitennur

Við munnþurrk minnkar festa gervitanna og tíðni sveppasýkinga vex. Mælt er með að fólk leiti ráða hjá tannlækni vegna erfiðleika sem tengjast notkun gervitanna vegna munnþurrks.


Greinar um munnþurrk:

Munnþurrk þarf að meðhöndla - Hólmfríður Guðmundsdóttir  (7.2.2007)

 



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica