Sími : 5 800 900
Tannheilsa

Heilbrigðar tennur - heilar tennur

Helstu þættir sem hafa þarf í huga til að halda tönnum sínum heilbrigðum

28.11.2006

Það er eftirsóknarvert að hafa heilbrigðar tennur alla ævi. Flestir Íslendingar vita í dag hvað veldur tannskemmdum. Óhreinindi sem við köllum tannsýklu, setjast á yfirborð tannanna og því er nauðsynlegt að bursta þær kvölds og morgna.

Mikilvægt er að bursta tennurnar með flúortannkrem því flúorinn tekur þátt í því viðgerðarferli sem stöðugt er í gangi við yfirborð tannanna og hefur truflandi áhrif á starfsemi þeirra baktería sem valda tannskemmdum. Ekki er hægt að bursta með tannbursta á milli tannanna er og því nauðsynlegt að nota tannþráð.

Mikilvægt er að fara í tannskoðun reglulega því munnkvillar geta komið aftan að fólki.

Á undanförnum árum hafa neysluvenjur okkar breyst verulega og gosdrykkjaneysla hefur aukist stórlega. Nú drekka margir gosdrykki sem sinn helsta svaladrykk. Mikilvægt er að átta sig á því að sífelld neysla á súrum og sætum drykkjum getur valdið glerungseyðingu. Það er mjög uggvænlegt ef glerungurinn, sem ver tennurnar, eyðist utan af þeim. Tennurnar þynnast og verða mun viðkvæmari fyrir kuli og hættan á tannskemmdum margfaldast.

Myndirnar sýna þætti sem hafa ber í huga til þess að viðhalda heilbrigðum tönnum:

Mynd1  Mynd2_minni      Mynd3_minni

tannburstunUndir liðnum Tannvernd hér á síðunni er að finna upplýsingar um glerungseyðingu og góð ráð við munnhirðu. Þar er einnig hægt að nálgast tannburstatímaklukkuna, sem er lítil hreyfimynd þar sem leiðbeint er skref fyrir skref um tannburstun, klukkan er góð til upprifjunar og hún minnir okkur á að taka okkur tíma í tannburstunina. (Smellið á myndina til hægri til að opna tannburstatímaklukkuna)

 

Jóhanna Laufey Ólafsdóttir

verkefnisstjóri tannverndar

Lýðheilsustöð

Greinin birtist í Morgunblaðinu 22. nóvember 2006.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica