Tannáverkar
Áverkar á tönnum geta verið margs konar. Minni háttar áverkar geta verið t.d. sprunga á glerungi eða það að kvarnast hefur úr glerungi. Við meiriháttar áverka getur hluti úr tannbeini hrokkið úr eða jafnvel öll tannkrónan brotnað af.
Ef hluti úr tannbeini hrekkur úr eða tannkrónan brotnar af getur opnast inn í tannkvikuna. Brotin tönn er mjög viðkvæm jafnvel þótt brotið sé ekki stórt, sérstaklega ef opnast hefur inn í kvikuna. Tannkvika barna og unglinga er ólík tannkviku fullorðinna þar sem holrúm hennar er stærra hjá börnum og unglingum. Það er því meiri hætta á að það opnist inn í kviku hjá yngri aldurshópnum en þeim eldri.
Rót getur líka brotnað niðri í kjálkabeininu, jafnvel án þess að tannkróna brotni. Slík brot er aðeins hægt að greina með röntgenmyndun. Þá getur tönn einnig gengið inn í kjálkann við högg eða slegist úr í heilu lagi.

Neyðarvakt tannlækna - símsvari: 575 05 05
Á símsvaranum eru upplýsingar um hvaða tannlæknir er með stofu sína opna milli kl. 11 og 13 þá helgi sem tilgreind er með dagsetningu og í hvaða símanúmeri næst í hann á bakvakt á öðrum tímum.
Skyndihjálp við tannáverkum 1 - PDF-skjal (myndrænt)
Skyndihjálp við tannáverkum 2 - PDF-skjal (meiri texti, færri myndir)
Áhættuhópar
Áverkar á tönnum eru nokkuð algengir, einkum hjá börnum og unglingum. Þótt börn á öllum aldri verði fyrir slysum í munni hafa þau reynst tíðust hjá börnum sem eru nýbyrjuð að ganga og meðal barna sem eru að nálgast unglingsárin, þá einkum vegna slysa í ærslafengnum leikjum. Áverkar á tönnum hafa einnig reynst algengari hjá drengjum en stúlkum. Þá eru áverkar algengari meðal þroskaheftra barna en það stafar væntanlega af því að þau detta oftar eða reka sig oftar á en ófötluð börn. Krampa- eða flogaveikir hljóta sérstaklega oft áverka á tönnum og í andliti.
Algengar aðstæður í leikjum barna þar sem þau fá tannáverka
Í boltaleik
|
Á hjóli
|
Í rennibraut
|
Á trampólíni
|




