Sími : 5 800 900
Tannheilsa

Tannkrem

28.8.2006

Hvernig tannkrem er best að nota? Mælt er með að tannkremið innihaldi flúor að styrkleika 0.01% eða 1000 ppm. Hægt er að sjá flúorstyrk tannkremsins á innihaldslýsingu vörunnar. Ekki er ráðlegt að nota barnatannkrem sem innihalda lægri flúorstyrk (500ppm) sem eru fáanleg á markaði.

Sama tannkremið fyrir alla fjölskylduna – bara mismunandi magn

tannb1

Ekki skola

Flúor úr tannkreminu heldur áfram að virka á tennurnar eftir tannburstun þannig að litlir úrkölkunarblettir ná e.t.v. að kalkast aftur. Því er mikilvægt er að skola ekki, bara skyrpa. Ekkert sakar þótt þú kyngir svolitlu flúortannkremi. Ef þú vilt skola munninn eftir tannburstun skaltu setja örlítið tannkrem aftur á burstann og bursta létt yfir tennurnar og skyrpa.

glas

Á markaði eru tannkrem sem innihalda ýmis önnur efni sem getur dregið úr tannholdssjúkdómum, tannstein, viðkvæmum tannhálsum. Leitaðu ráða hjá tannlækni/tannfræðingi þínum.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica