Sími : 5 800 900
Tannheilsa

Fróðleikur um flúor

28.8.2006

Flúor er eitt algengasta frumefni jarðarinnar og finnst mjög víða, svo sem í andrúmslofti, sjó, jarðvegi og í dýra- og jurtaríkinu. Ítrekaðar rannsóknir hafa sýnt fram á að flúor er langvirkasta efnið til varnar tannskemmdum. Vatn er víða aðalflúorgjafi fólks en sé það undanskilið fæst flúor aðallega úr te og fiskmeti, og þá einkum úr beinum og roði. Rannsóknir hafa leitt í ljós að flúortekja Íslendinga er mjög lítil þar sem drykkjarvatn okkar er mjög flúorsnautt.

Af hverju er flúor mikilvægt fyrir tennur?

Talið er að lágur en stöðugur flúorstyrkur í munnholi sé nauðsynlegur til að halda við Tannburstakarl_HGheilbrigðum tönnum. Tannburstun með flúortannkremi með styrkleika 0.1% F-, tvisvar sinnum á dag, viðheldur lágmarksflúorstyrk í munnholi og er því afar áhrifamikill þáttur í daglegri vörn gegn tannskemmdum, hjá öllum aldurshópum.

Flúor tekur þátt í því viðgerðarferli sem stöðugt er í gangi við tannyfirborð auk þess að hafa truflandi áhrif á starfsemi þeirra baktería sem valda tannskemmdum. Verkunin er staðbundin á yfirborði tanna og varnandi áhrif þau sömu hjá öllum aldurshópum.

Flúor dregur úr tannskemmdum á eftirfarandi hátt:

  • Í fyrsta lagi hindrar flúor úrkölkun vegna sýrumyndunar og hraðar stórlega endurkölkun og græðslu tannskemmdasárs á byrjunarstigi.
  • Í öðru lagi sest hann á glerunginn og styrkir hann og á sama hátt tekur glerungurinn í sig flúor frá tannkremi eða í flúormeðferð tannlæknis svo að talið er að tennurnar verði torleystari í þeirri sýru sem sýklarnir mynda.
  • Í þriðja lagi dregur hann úr áhrifum sýkilsins með því að smjúga inn í veggi hans og rugla með því hvatastarfsemi hans þannig að sýrumyndun verður minni.

Flúor fæst úr ...

Flúor í tannkremi

Flúorskol í grunnskólum

Samkvæmt tilmælum landlæknis skal bjóða 6, 12 og 15 ára árgöngum í grunnskólum upp á skolun tanna með flúorlausn, á tveggja vikna fresti allt skólaárið – á vegum heilsugæslunnar.

Nánar um tilmæli frá Landlæknisembættinu

Grein um flúor:

Flúor fyrir alla unga sem aldna

Ofnotkun flúors
Um ofnotkun flúors gildir það sama og um svo mörg önnur efni og efnasambönd sem mannslíkamanum eru nauðsynleg, svo sem vítamín, súrefni o.fl., að magnið þarf að vera hæfilegt. Hæfilegt magn flúors hindrar tannskemmdir en of mikið flúor getur valdið útlitsbreytingum á glerungi tanna, en þær eru skaðlausar.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica