Í tilefni tannverndarviku
Það skiptir ekki máli hvenær að deginum við hreinsum á milli tannanna, bara að það sé gert. Einu sinni á sólarhring á að vera hreint á milli tannanna. Flóknara er það ekki.
Tannheilsa Íslendinga hefur breyst mikið til batnaðar á seinni árum og er hægt að segja að við séum samstíga hinum Norðurlöndunum hvað hana varðar. Það hafa rannsóknir sýnt sem gerðar hafa verið á viðmiðunarhópi 12 ára barna. En við megum ekki ofmetnast því enn erum við ein mesta sykurneysluþjóð í heimi þó alkunna sé að sykur- og gosdrykkjaneysla stuðli að tannskemmdum og glerungseyðingu. Gott væri að nota tannverndarvikuna til að skoða hvernig þessum málum er háttað á heimilinu og koma málum í betra horf þar sem þörf er á með það í huga að allt kann sá er hófið kann.
Fræðsla í grunnskólunum í um 20 ár
Fræðslu um munnhirðu og tannvernd hefur notið við í öllum grunnskólum landsins nær samfellt í tuttugu ár og er því orðin fastur liður í skólastarfinu. Tannfræðingar hafa séð um þessa fræðslu, sem hefur verið á vegum heilbrigðisráðuneytisins og Heilsugæslu Reykjavíkurborgar en er nú á vegum Lýðheilsustöðvar. Heimsóttir eru fimm aldurshópar 6, 8,10,12 og 15 ára. Þó getur það verið breytilegt í fámennari skólum á landsbyggðinni. Tilhögunin er þannig að hver bekkjardeild fær eina kennslustund eða aldurshópar eru sameinaðir. Fræðsluefnið er sett upp á þann hátt að það höfði til hvers hóps fyrir sig. Jafnframt því að fræða börnin um tennurnar, er rætt um skólanesti og þær drykkjarvörur sem standa til boða í skólunum. Sum börn velja að koma með drykki að heiman og eru það þá oftast safar en mælt er með að börn drekki mjólk eða vatn með nestinu sínu. Mjólkuriðnaðurinn niðurgreiðir mjólkina að hluta til í öllum grunnskólum landsins.
Tannfræðsla er forvarnarstarf og hefur það sýnt sig að hún skilar góðum árangri. Foreldrar skólabarna hafa orð á því að eftir heimsóknir tannfræðings skapist oft umræða á heimilunum um tannhirðu og hollar matarvenjur og er það vel. Tannfræðsla í grunnskólum er einn hlekkur í þeirri keðju að bæta tannheilsu barna og unglinga til framtíðar. Notið tannverndarvikuna vel, komið tannmálunum á hreint það er aldrei of seint og alltaf má gera betur.
Greinin birtist í Morgunblaðinu í tilefni Tannverndarviku 2006
Höfundur: Hrafnhildur Pétursdóttir, tannfræðingur og verkefnisstjóri tannverndar hjá Lýðheilsustöð
