Tannheilsa
Hvernig koma fullorðinstennurnar?
Allir krakkar missa barnatennurnar og fá þá nýjar tennur, fullorðinstennurnar. Myndirnar og skýringatextinn hér fyrir neðan lýsa vel því sem gerist við þessar breytingar

1. 2. 3. 4.
-
Nýja tönnin myndast á milli rótanna á barnatönninni.
-
Ræturnar á barnatönninni eyðast smám saman svo að nýja tönnin komist upp. Bráðum fer barnatönnin að losna.
-
Nú eru rætur barnatannarinnar alveg horfnar og barnatönnin er orðin mjög laus.
-
Lausa barnatönnin dettur og nýja fullorðinstönnin kemur upp í gegnum tannholdið. Hún er mjög föst og hefur langar rætur, enda á hún að endast alla ævi!
Myndirnar eru teiknaðar af Tinu Brinch og unnar upp úr bókinni um barnatennurnar sem upphaflega var gefin út af danska tannlæknafélaginu. Bókin var gefin út í íslenskri þýðingu af Tannverndarráði 2004, sjá hér til hliðar.
