Tannheilsa
TANNFRÆÐSLUHORNIÐ
Í Tannfræðsluhorninu er safnað saman fróðleik, kennsluefni og verkefnum um tennur og tannvernd, sem nýst getur öllum sem áhuga hafa.
Kennarar: Til hægðarauka hefur fræðslu- og ítarefni verið raðað eftir skólastigum og aldursflokkum. Sjá hliðval til vinstri.
Desemberföndur og myndir til að lita
- best er að vista myndirnar í tölvunni hjá sér (t.d. á Desktop) og prenta út þaðan. Annars er hætt við að myndirnar verði of stórar til útprentunar.
Lengi býr að fyrstu gerð
- Það eru mikilvæg lífsgæði fyrir hvern einstakling að hafa heilbrigðar tennur og þar skiptir mestu að temja sér hollar neysluvenjur og góða tannhirðu.
- Barnatennur og nýuppkomnar tennur eru sérstaklega viðkvæmar fyrir tannskemmdum.
- Sælgæti sem klístrast við tennurnar, t.d. karamellur, hlaup og lakkrís, er lengi að eyðast af yfirborði tannanna. Á meðan liggja tennurnar í sýrubaði.
- Til þess að draga úr hættu á tannskemmdum ber að hafa í huga að það skiptir meira máli hversu oft við neytum sykurs en hversu mikils magns við neytum.
- Í góðri og nauðsynlegri tannvernd felst að að börn neyti sætinda í algjöru lágmarki í jafnt í dagæslu, skóla og á heimili.
- Gott getur verið að setja reglur um hvaða góðgæti börn mega hafa með sér t.d. í skólann, þegar þau gera sér glaðan dag.
|
![]() |
![]() |








