Hollusta á heimavelli
Kalt og svalandi vatn ætti að vera alls staðar aðgengilegt þar sem börn eru við leik og störf.
Kalt og svalandi, hreint og ómengað, hollt og gott. Hvað skyldi það vera sem á öll þessi lýsingarorð skilin? Það er að sjálfsögðu kalda vatnið okkar. Við erum svo lánsöm að geta drukkið hreint og ómengað vatn beint úr krananum. Þegar við ferðumst erlendis finnum við sérstaklega hversu vel við búum þegar ómengað og bragðgott drykkjarvatn fæst ekki nema sem söluvara.
Átak er nú hafið á vegum Heilbrigðisráðuneytis, Umhverfisráðuneytis, UMFÍ, KSÍ og Orkuveitu Reykjavíkur til að stuðla að meiri vatnsdrykkju barna og unglinga í landinu. Öll grunnskólabörn fá vatnsbrúsa að gjöf. Tilgangur þessa átaks er að stuðla að heilbrigðari lífsháttum með því að minnka neyslu gosdrykkja, súrra og sætra drykkja en auka neyslu vatns sem er okkar náttúrulega auðlind. Auk þessa er tilgangur verkefnisins að stuðla að hreinna umhverfi með því að minnka þann úrgang sem felst í drykkjarumbúðum.
Um árabil hefur Tannverndarráð lagt áherslu á neyslu vatns í stað kolsýrðra, sætra og súrra drykkja. Vitað er að neysla gosdrykkja á Íslandi er óhóflega mikil eða 160 lítrar á hvert mannsbarn á ári. Þetta eru meðaltalstölur og líklegt er að börn og unglingar neyti meirihluta gosdrykkjanna. Talið er að glerungseyðingu á tönnum megi rekja að mestu til of mikillar neyslu á kolsýrðum og súrum drykkjum. Rannsókn dr. Peter Holbrook og Ingu B. Árnadóttur tannlækna við Háskóla Íslands leiddi í ljós að 20% unglinga í 10. bekk grunnskóla voru með glerungseyðingu og 3% nemenda höfðu engan glerung aftan á framtönnum í efri gómi. Það er því full ástæða til að hvetja foreldra til að huga að neysluvenjum barna sinna. Nauðsynlegt er einnig að bæta aðstöðu til vatnsdrykkju með drykkjarbrunnum á stöðum eins og íþróttahúsum og grunnskólum. Kalt og svalandi vatn ætti að vera alls staðar aðgengilegt þar sem börn eru við leik og störf.
Greinin birtist í Morgunblaðinu 5. júlí 2002
