Sími : 5 800 900
Tannheilsa

Mælikvarði á tíðni tannskemmda, DMFT og DMFS

15.12.2005

Skemmdar, fylltar og tapaðar tennur eða tannfletir

DMFT og DMFS eru alþjóðlegir mælikvarðar sem eru notaðir til þess að gefa tannskemmdum tölulegt gildi. DMFT segir til um hversu margar tennur eru skemmdar hjá tilteknum einstaklingi.

Þetta er gert með því að telja fjölda

  • skemmdra / Decayed (D)
  • tapaðra / Missing (M) og
  • fylltra / Filled (F)
    tanna (T) eða tannflata / surfaces (S).

    Þessi matsaðferð segir því til um hversu margar tennur hafa orðið fyrir skemmdum. Þetta er ýmist metið útfrá öllum fullorðinstönnunum, sem eru 32 talsins, eða út frá 28 tönnum en þá er endajöxlunum sleppt.

    Með öðrum orðum:
  • Hversu margar tennur eru skemmdar (skemmdir á byrjunarstigi eru ekki meðtaldar)?
  • Hversu margar tennur hafa verið dregnar?
  • Hversu margar tennur eru fylltar eða með krónu?
    Summan af þessu gefur DMFT-gildið.

    Dæmi: DMFT 4 + 3 + 9 = 16 þýðir að 4 tennur eru skemmdar, 3 tennur vantar og 9 tennur eru með fyllingu. Þetta þýðir einnig að 12 tennur eru óskemmdar (ef miðað er við 28 tennur). Ef tönn er bæði með skemmd og með fyllingu er það aðeins metið sem skemmd (D). DMFT-gildið getur því hæst orðið 28 (eða 32 ef endanjaxlar eru einnig meðtaldir) sem þýðir að allar tennur hafi orðið fyrir skemmdum.

    DMF / DMFS er ítarlegri mælikvarði en DFMT. Þetta mat felur í sér að telja skemmda tannfleti (per tooth surface, DMFS). Jaxlar og framjaxlar hafa 5 fleti en framtennur hafa 4 fleti. Eins og áður eru fletir sem bæði eru með skemmd og fyllingu aðeins metnir sem skemmd (D). DMFS-gildið getur því hæst orðið 128 ef miðað er við 28 tennur.

    Fyrir barnatennur, sem eru 20 talsins, eru sambærilegir mælikvarðar notaðir við mat á skemmdum tönnum eða deft og defs, e stendur fyrir útdregnar tennur.

    Eftirfarandi gildi eru notuð þegar skemmdir hjá fullorðnum eru tilgreindar
    DMFT - Meðaltal skemmdra, tapaðra og fylltra tanna.
    % DMFT - Hlutfall skemmdra tanna í tilteknum hópi.
    %D - Hlutfall ómeðhöndlaðra skemmdra tanna í tilteknum hópi.
    DT - Meðaltal skemmdra tanna.
    MT - Meðaltal tapaðra tanna.
    MNT - Meðalfjöldi tanna.
    %Ed - Hlutfall tannlausra í tilteknum hópi.

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica