Sími : 5 800 900
Tannheilsa

Drekkum vatn

12.8.2005

Tannverndarvika 3. til 9. febrúar 2003.
Mikil gosdrykkjaneysla er án efa einn mesti skaðvaldurinn á tönnum Íslendinga, enda drekkur hver einstaklingur að meðaltali um 1/2 litra af gosdrykkjum á hverjum degi.


Hver sykruð gosdrykkjaflaska inniheldur u.þ.b. 15 sykurmola og í hvert sinn sem gosdrykkjar er neytt verður munnvatnið súrara svo að tennurnar liggja í sýrubaði og leysast upp, ef stöðugt er verið að neyta gosdrykkja. Sykurlausu gosdrykkirnir eru lítið betri, m.a. vegna kolsýru sem í þeim er. Sé jafnframt haft i huga, að hver Íslendingur neytir 53 kg af sykri og 17 kg af sælgæti á hverju ári má teljast kraftaverk að á um 10 ára tímabili tókst að fækka tannskemmdum um rúm 70 % m.a. með fræðlu og fyrirbyggjandi aðgerðum.
Þessi mikla neysla gosdrykkja er lítt skiljanleg, því við eigum gott drykkjarvatn i flestum húsum, sem við gleymum of oft, liklega vegna þess hve ódýrt það er og lítið auglýst. Við þurfum að gera enn auðveldara að náIgast gott kalt vatn, þótt víða hafi verið gert átak i þeim efnum með því að setja upp drykkjarskálar.
Því miður hefur víða ekki verið gengið rétt frá lögnunum að drykkjarskálunum með einangrun sem er nauðsynlegt engu síður en við heitavatnsleiðslur. Afleiðingin er sú að vatnið verður ekki nægjanlega svalandi. Engum dettur í hug að einangra ekki leiðslur sem flytja heitt vatn til að hiti þess tapist ekki. Hið sama gildir auðvitað um kalda vatnið, leiðslurnar þarf að einangra svo að það haldi ferskleika sínum og hitni ekki. Þetta hefur verið athugað víða hérlendis þar sem settar hafa verið upp drykkjarskálar. Hvergi voru aðveituleiðslur að skálunum einangraðar og oft lágu þær gegnum hitaklefa eða salerni með yfir 20° hita. Það var t.d. raunin með drykkjarvatnsskálar í anddyri Landspítalans. Þar var vandamálið leyst með því að fjarlægja skálarnar, en eftir standa rafkældir sjálfsalar með gosdrykkjum og sælgæti.
Útlendingar sem koma hingað til lands og fá tækifæri til að prófa kalda vatnið okkar, kunna vel að meta gæði þess. Skilja þeir lítið í því hve mikils af gosdrykkjum við neytum.
Kom þetta m.a. fram í viðtali við Dorrit Moussaieff i Morgunblaðinu nýlega. Telur hún kalda vatnið okkar hið besta i heiminum og hefur hún ætíð flösku með íslensku kranavatni í bílnum sem bíður hennar hérlendis, eftir að hún hefur dvalist erlendis. Hér sannast sem oft áður að glöggt er gests augað.

Magnús Ragnar Gíslason tannlæknir,
fyrrverandi yfirtannlæknir.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica