Sími : 5 800 900
Slysavarnir

Örugg heimili fyrir yngstu gestina

Slysavarnir og ráð fyrir ömmur og afa

4.12.2008

Slys á heimilum eru meðal algengustu slysum á Íslandi. Samkvæmt Slysaskrá Íslands eru heima – og frítímaslysin algengustu slysin og er þetta í samræmi við það sem gerist erlendis.

Dögg Hauksdóttir (2004) gerði rannsókn á heimaslysum og er þetta ítarlegasta greiningin á heimaslysum sem hefur verið gerð hér á Íslandi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að börn eru langstærsti hópur slysaþola og flest slysin gerast hjá aldurshópnum 1-4 ára enda er mestum tíma barnanna varið innan veggja heimilanna. Algengustu heimaslysin eru föll og árekstrar. Slysin gerast oftast i setustofunni eða svefnherberginu og á milli kl. 16.00 og 21.00. Strákar verða oftar fyrir slysum enn stelpur.

Fátt er skemmtilegra fyrir ömmur og afa enn að fá barnabörnin í heimsókn. Þó er að ýmsu að huga því eðlinu samkvæmt er heimilið ekki lengur eins öruggt og það var á meðan börnin bjuggu heima. Hins vegar haga börn sér eins sama hvar þau eru, kanna heiminn, vilja príla eða kannski láta ofan í sig skaðlega hluti.

Það sem fullorðnu fólki finnst eðlilegir hlutir geta verið slysagildrur fyrir börnin og það er okkar, hvort sem það eru foreldrar, ömmur og afar eða aðrir sem hugsa um barnið, sem bera ábyrgð á að barnið sé í öruggu umhverfi.

Því er nauðsynlegt að fara yfir heimilið og með gátlista og athuga hvar þarf að bæta öryggið.

Gátlista er t.d. hægt að finna hér (PDF-skjal), og inni á www.landsbjorg.is og www.forvarnarhusid.is

Hér koma nokkur hollráð en tekið skal fram að þetta er ekki tæmandi ráðgjöf og fleiri mikilvægar upplýsingar að finna á fyrrnefnum vefsíðum.

Algengasta orsök slysa hjá 0-4 ára eru föll. Það er margt hægt að gera til að fyrirbyggja að barnið detti. Ágætis regla er að lyfta aldrei barninu upp á eitthvað sem það kemst ekki sjálft upp á. Einnig að skilja barnið aldrei eitt eftir eða líta af því ef það liggur t.d á skiptiborði, er upp í hjónarúmi, í baðinu, í matarstólnum eða upp í sófa.

Allir gestir þurfa öruggan stól, líka börnin

Algengasta orsök slysa hjá 0-4 ára eru föll. Það er margt hægt að gera til að fyrirbyggja að barn detti. Ágætis regla er að lyfta aldrei barninu upp á eitthvað sem það kemst ekki sjálft upp á og líta aldrei af barni sem liggur uppi á skiptiborði, er upp í hjónarúmi, í baðinu, í matarstólnum eða uppi í sófa.

Ef barnið er í hástól/matarstól þarf hann að vera stöðugur, allir hástólar geta oltið en hægt er að koma í veg fyrir að stóll velti með því að festa hann með öryggisól við borðplötuna að neðan, barnið skal festa með beisli í stólinn frá upphafi. Það er nauðsynlegt að eiga öruggan stól með beisli fyrir unga gesti.

Grípið reglustiku eða málband, mælið öryggið á ykkar heimili!

Ef stigar eru á heimilinu þurfa að vera öryggishlið fyrir stigaopum bæði uppi og niðri, það er nauðsynlegt að eiga öryggishlið til að nota þegar börn koma í heimsókn.  Á svalahurðum þarf að vera öryggislæsing sem hægt er að nota til að tryggja að hurðin opnist ekki meira en 10 cm. Svalahandrið ætti að vera með lóðréttum rimlum og bil milli þeirra og milli handriðs og svalagólfs ekki vera meira en 10 cm.  Öryggislæsing á gluggum á að hindra að barn falli út um hann.

Ganga þarf þannig frá rimla- og rúllugardínum að snúrur hangi ekki niður til að koma í veg fyrir að lítil börn nái að setja þær utan um hálsinn á sér. 
 

Heitt vatn og heitir drykkir

Árlega verður töluverður fjöldi bruna vegna heita vatnsins og heitra drykkja. Til að forðast bruna ætti vatn úr krana á heimilum ekki að verða heitara enn 40°C.

Það er mikilvægt að vera með blöndunartæki með hitastilli en kanna líka hitastigið áður en hendur barnsins fara undir vatnið eða farið er út í það. Aldrei skal skilja lítið barn eftir eftirlitslaust inni á baðherbergi þar sem er baðker, vaskur eða klósett með vatni. Gott

Er að hafa í huga að aldrei vera með kaffibolla og barn í fanginu á sama tíma.

 Það er einnig ýmislegt sem ber að passa upp á í eldhúsinu. T.d. er mikilvægt að handföng á pottum og pönnum snúi inn á við þannig að lítil börn geti ekki teygt sig í þau. Einnig þarf að passa vel upp á þau í nálægð við uppþvottavélina. Aldrei skal skilja hana eftir opna hvorki þegar er verið að setja í hana eða tæma hana. Dæmi eru um að börn hafa skaðbrennst eftir að hafa klifrað upp á hurðina eftir að hún hefur verið opnuð eftir þvott. Góðar upplýsingar um heita vatnið er að finna á www.stillumhitann.is


Ekki bjóða litlum gestum litríkar töflur á náttborðinu

Læsið öll lyf inni, best er að vera með lyfjaskáp með lykli.  Hægt er að fá öryggislæsingar á skápa en stundum eru þær ekki nóg til að koma í veg fyrir að barnið nái í lyf. Lyf geta verið heillandi fyrir börn, bleikar og blára töflur sem líta út eins og nammi og oftast þarf einungis mjög litla skammta til að barnið geti fengið eitrun og jafnvel dáið. Þetta á einnig við vítamín.  Vert er að huga að því að plöntur á heimilinu geta verið eitraðar. Þvottaefni eru mjög hættuleg, þau valda ekki bara eitrunum heldur geta þau brennt innyfli barna varanlega. Notið læstan skáp.


Hnífar til sýnis og gler til að hoppa á

Verið viss um að hnífar, skæri og önnur beitt áhöld séu geymd þar sem ung börn ná ekki til. Það er t.d. mikilvægt að t.d hnífasett séu vel geymd en ekki hengd á vegg eða aðgengileg á borði eða bekk.  Ef það er glerborð i stofunni er miklvægt að vera á varðbergi. Dæmi eru um að börn hafa leikið sér á þeim og þau hafi brotnað. Ekki þarf að spyrja að því að það getur farið illa.

 
Barnið í öruggu sæti í bílnum þínum

Oft þurfa ömmur og afar að vera með barnabörnin í bílnum. Hver sem á í hlut á þarf ætíð að tryggja eftir fremsta megni öryggi barnanna í bíl. Til er margs konar öryggisbúnaður og rétt notkun hans er mjög mikilvæg. Hafið í huga að öryggisútbúnaðurinn má ekki vera of gamall. Hann þarf að vera skv. ákveðnum stöðlum sem eldri búnaður uppfyllir ekki og einnig getur hann reynst ónýtur og þar af leiðandi hættulegur.

Góðar upplýsingar er að finna á vef Umferðastofu: www.us.is

Vert er að benda á að hægt er að fá leigða barnabílstóla hjá bæði tryggingafélaginu VÍS og hjá Tryggingamiðstöðinni sem er í samstarfi við verslunina BabySam. Verslunin Ólíva og Ólíver eru í samstarfi við Sjóvá og leigja einnig barnabílstóla.

Ég mæli með að skoða heimasíðu www.babysam.is  og Ólavíu & Ólívers www.oo.is því þar er að finna hinar ýmsu vörur sem er hægt leigja. Það gæti komið sér vel fyrir ömmur og afa.

Gátlisti – líka á efri árum

Árið 2003 gerði Landlæknisembættið  úttekt á slysum eldri borgara á árinu og byggir hún á gögnum frá Slysaskrá Íslands og bráða- og slysadeild Landspítalans í Fossvogi (LSH). Samkvæmt úttektinni leituðu tæplega 1.850 slasaðir einstaklingar, 65 ára og eldri, til slysadeildar LSH á þessu eina ári. Flestir komu vegna heima- og frítímaslysa, eða 75%. Slys á öldruðum, bæði körlum og konum, eru hlutfallslega algengari heldur en hjá öðrum hópum fullorðinna. 

Samkvæmt fyrrgreindri úttekt varð mikill meirihluti slysa á eldri borgurum eða 66% á og við heimili. Eins og hjá börnunum þá var algengasta orsökin fall eða rúmlega 67% tilfella. Þegar litið er á kyn og aldur slasaðra sést að fjöldi falla fer hlutfallslega vaxandi með hækkandi aldri og að konum hættir frekar til þess að detta heldur en körlum. Það er ýmislegt hægt að gera til að fyrirbyggja slys og mikilvægt  að horfa á heimili sitt markvisst og með gagnrýnum augum og minnka þær slysahættur á heimilinu.

Gott er að styðjast við gátlista, þá er m.a. að finna á: www.landsbjorg.is og einnig á www.forvarnarhusid.is,

Hér fylgja nokkur hollráð úr bæklingnum „Örugg efri ár“ sem gefinn er út af Slysavarnafélaginu Landsbjörgu og gott er að hafa í huga til að fyrirbyggja fall:

Inni á heimilinu:

  • Góð lýsing, sérstaklega í stigum og ættu rofar að vera bæði fyrir ofan og neðan þá. Næturljós eru gagnleg þegar farið er fram á næturnar
  • Handrið þurfa að vera báðum megin í stigahúsum, við útitröppur og tröppur innanhúss. Gott er að setja límborða í öðrum lit neðst í tröppuna til að sjá betur hvar stiginn endar. Lagfæra trosnuð og slitin teppi í stiga, fallhætta skapast við rifur sem myndast.
  • Nota stamar mottur á baðgólfi, í baðkari og í sturtubotni og handföng við baðkar og sturtu auka öryggi.  Hitastillir er nauðsynlegur á blöndunartækjum, því hitaveituvatn getur orðið skaðlega heitt. Benda má á að það er þó nokkuð há tíðni bruaslysa hjá eldra fólki vegna heita vatnsins.
  • Laus teppi eða mottur á gólfi geta skapað fallhættu, nota gúmmídúk undir þær til að tryggja stöðugleika. Fjarlægja mottur sem eru farnar að rúllast upp til endanna.
  • Rafmagnssnúrur eiga að vera upp við veggi og til eru sérstakar veggfestingar fyrir þær
  • Nota þarf stöðuga tröppu þegar t.d er skipt um peru, gluggar þvegnir eða gardínur teknar niður eða settar upp. Fá aðstoð við þessa hluti ef þarf.
  •  Hálar tröppur má lagfæra með því að setja á þær hálkustrimla Í hálku er gott að geyma fötu með sandi við útidyrnar og dreifa honum yfir þrepin áður en gengið er niður

Framundan er vorið og því fylgir að farið er að huga að garðinum,  húsinu eða sumarbústaðnum eins og að mála eða lagfæra hina ýmsu hluti. Sumir hætta sér jafnvel upp á þak.  Það má til sanns vegar færa að slysin gera ekki boð á undan sér. Málið snýst einnig um það hvernig við hegðum okkur við ólíkar aðstæður og við athafnir sem við erum kannski ekki vön.

Slysavarnafélagið Landsbjörg og einingar þess hefur boðið upp á öryggisheimsóknir á þó nokkrum stöðum og markmiðið er að útvíkka það enn frekar.

 

Með bestu óskir um gott og slysalaust  sumar

Rósa Þorsteinsdóttir, verkefnisstjóri slysavarna.

                                       

Heimildir:

Vefur Lýðheilsustöðvar

Dögg Hauksdóttir (2002). Heimaslys. (Rafræn útgáfa) sótt af www.lydheilsustod.is

Vefur Landlæknisembættisins: www.landlaeknir.is

Vefur Slysavarnafélgasins Landsbjargar: www.landsbjorg.is

(Greinin birtist áður í Húsfreyjunni, 2. tbl. 2008) 

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica