Sími : 5 800 900
Greinasafn

Fyrri starfsemi áfengis- og vímuvarnaráðs

23.1.2006

Um fyrri starfsemi Áfengis- og vímuvarnarráðs

Upplýsingar um ráðið

Áfengis- og vímuvarnaráð var stofnað með lögum um Áfengis- og vímuvarnaráð nr. 76/1998 í samræmi við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í fíkniefna-, áfengis- og tóbaksvörnum sem samþykkt var 3. desember 1996. Við gildistöku laga um Lýðheilsustöð, nr. 18 2003, þann 1. júlí 2003 féllu fyrri lög um ráðið úr gildi. Eitt af hlutverkum ráðsins er að gera tillögu til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um úthlutun styrkja úr Forvarnasjóði Áfengis- og vímuvarnaráðs. Stefna ráðsins Á fyrsta starfsári Áfengis- og vímuvarnaráðs, 1999, var stefna þess mörkuð. Til að meta hvar pottur væri brotinn í vímuvörnum, hvað væri vel gert og hvað þyrfti að gera var farið í þarfagreiningu með 5 hópa sem allir starfa að vímuvörnum. Niðurstöður þarfagreiningarinnar og stefnan eru síðan lögð til grundvallar þegar framkvæmdaáætlanir ráðsins eru gerðar. Niðurstöður þarfagreiningar Stefna Áfengis- og vímuvarnaráðs 1999 Stefna Áfengis- og vímuvarnaráðs 2000 Stefna Áfengis- og vímuvarnaráðs 2002 Framkvæmdaáætlanir Áfengis- og vímuvarnaráðs Framkvæmdaáætlun er gerð fyrir hvert starfsár Áfengis- og vímuvarnaráðs. Í áætlununum kemur meðal annars fram hvaða verkefni og rannsóknir verði framkvæmdar á því ári sem um ræðir. Framkvæmdaáætlun ársins 2000 Framkvæmdaáætlun ársins 2001 Framkvæmdaáætlun ársins 2002 Framkvæmdaáætlun ársins 2003 Ársskýrslur Áfengis- og vímuvarnaráðs Í ársskýrslum Áfengis- og vímuvarnaráðs er að finna upplýsingar um stefnu ráðsins, helstu áherslur í starfi þess, upplýsingar um fundi, ráðstefnur og skiptingu fjármuna. Einnig er að finna upplýsingar um þau verkefni sem hlutu styrki úr Forvarnasjóði árið á undan og framkvæmdaáætlun fyrir komandi ár. Ársskýrsla Áfengis- og vímuvarnaráðs 1999 Ársskýrsla Áfengis- og vímuvarnaráðs 2000 Ársskýrsla Áfengis- og vímuvarnaráðs 2001 Ársskýrsla Áfengis- og vímuvarnaráðs 2002

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica