Sími : 5 800 900
Manneldi

Matur og meðganga

Fróðleikur fyrir konur á barneignaaldri

22.11.2004

Matur á meðgöngu. smella á mynd til að skoða bæklinginnMeðganga er tími breytinga í lífi hverrar konu. Daglegt líf snýst nú ekki aðeins um eigin þarfir heldur einnig um þarfir annars einstaklings. Heilsusamlegt mataræði og rétt meðhöndlun matvæla skiptir því sjaldan meira máli fyrir heilsu og líðan en einmitt á þessum tíma.
Nýlega kom út á vegum Lýðheilsustöðvar, Miðstöðvar mæðraverndar og Umhverfisstofnunar bæklingur þar sem fjallað er um helstu atriði sem vert er að hafa í huga, bæði varðandi undirbúning meðgöngu og lífshætti á sjálfri meðgöngunni.

Venjulegur góður og næringarríkur matur

Ekki er þörf fyrir neitt sérfæði á meðgöngunni. Venjulegur, góður og fjölbreyttur matur fullnægir bæði þörfum barnsins og móðurinnar með fáeinum undantekningum. Helstu sérþarfirnar eru þær að öllum konum sem geta orðið barnshafandi er ráðlagt að taka 400 míkrógramma fólattöflu (fólinsýrutöflu) daglega fyrir meðgöngu og fyrstu 12 vikur meðgöngu, auk þess sem þeim er ráðlagt að borða fólatíkar matvörur til að draga úr hættu á alvarlegum fósturskaða á miðtaugakerfi. Barnshafandi konum, eins og raunar landsmönnum öllum, er ráðlagt að taka D-vítamín aukalega, til dæmis með teskeið af þorskalýsi. Ekki er þó æskilegt að taka meira magn en sem nemur ráðlögðum dagskammti af vítamínum á meðgöngunni. Þetta á ekki síst við um A-vítamín. Í bæklingnum er einnig fjallað um hæfilega þyngdaraukningu á meðgöngu.. Konum yfir kjörþyngd er ráðlagt að þyngjast nokkuð minna en hinum sem eru í eða undir kjörþyngd fyrir þungun. Öllum konum er hins vegar eðlilegt að þyngjast á meðgöngunni, og of lítil þyngdaraukning er ekki síður óæskileg en of mikil aukning.

Rétt meðhöndlun matvæla

Hreinlæti við mat og matargerð skiptir ævinlega máli, en fær aukið vægi á meðgöngu þar sem skaðlegar bakteríur og sníkjudýr geta haft áhrif á heilsu bæði móður og fósturs. Sérstaklega er varað við að borða hrá matvæli eins og hráan fisk, hrátt kjöt, hrá egg eða drekka ógerilsneydda mjólk. Einnig er fjallað um mataræði á ferðalögum erlendis, þar sem hugsanlega þarf að varast einstaka fæðutegundir vegna aðskotaefna, mengunar eða sýkingarhættu.

Hollir lífshættir á meðgöngu

Hæfileg hreyfing og næg hvíld eru lykilatriði á meðgöngu. Notkun hvers kyns vímugjafa er hins vegar varhugaverð og best að sleppa notkun þeirra algjörlega. Áfengi og tóbak skaða beinlínis fóstrið, og lyf, fæðubótarefni eða náttúruefni ætti heldur ekki að taka án þess að ráðfæra sig við lækni.

Laufey Steingrímsdóttir, sviðstjóri rannsókna Lýðheilsustöð

Bryndís Eva Guðmundsdóttir, næringarfræðingur

Hægt er að panta bæklinginn „Matur og meðganga“ hjá Miðstöð mæðraverndar (mm@mm.hg.is) eða í síma 585 1400.
Bæklingurinn Matur og meðganga, fróðleikur fyrir konur á barneignaaldri, hefur verið þýddur á 7 tungumál, og með því að smella á hlekkinn má nálgast PDF-útgáfu af þeim.

Njóttu meðgöngunnar

  • Borðaðu góðan og næringarríkan mat.
  • Hreyfðu þig reglulega eins og þér líkar best.
  • Mundu að barnið er öruggara án áhrifa áfengis, tóbaks eða annarra vímuefna.
  • Finndu slökunarleið sem hentar þér og þú getur fléttað inn í daglegt líf, t.d. lestur, tónlist, hugleiðslu, leikfimi, gönguferðir eða böð.
  • Gerðu eitthvað sérstakt fyrir sjálfa þig eða barnið, eitthvað sem þér finnst gott og skemmtilegt.
  • Notfærðu þér þjónustu mæðraverndar.

Í bæklingnum Mataræði og lífsstíll íslenskra kvenna á meðgöngu, eftir Önnu Sigríði Ólafsdóttur matvæla og næringarfræðing, er hægt að fá enn frekari upplýsingar um mataræði á meðgöngu.

Hér er hægt að finna ítarefni um meðgöngu

Smelltu til að skoða PDF


Myndin hér fyrir ofan er hlekkur/krækja inn á fyrirlestur um mataræði og lífstíl íslenskra kvenna á meðgöngu.

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica