Sími : 5 800 900
Manneldi

Drekkum vatn - hollasta svaladrykkinn

27.7.2004

Dagana 18.6 til 1.8. er átak til heilsueflingar á Akureyri og er yfirskriftin - VATN ER SVALT . Markmiðið er að hvetja fólk til heilsubætandi athafna, huga að vatnsneyslu sinni og auka þannig lífsgæði sín. Vatn er líkamanum lífsnauðsynlegt og getum við ekki lifað án þess nema nokkra daga. Við fáum vatn úr kjöti, fiski, grænmeti, ávöxtum og öðrum matvælum en mest fáum við úr drykkjum.

Vatnsdrykkja hefur verið að aukast hér á landi á undanförnum árum og hefur hvorki meira né minna en þrefaldast frá 1990 samkvæmt niðurstöðum Landskönnunar á mataræði 2002. Vatn er núna algengasti drykkur Íslendinga en var fjórði í röðinni árið 1990, á eftir kaffi, mjólk og gosdrykkjum. Hins vegar hefur orðið óæskileg þróun í gosdrykkjaneyslu sem hefur verið að aukast og er vægast sagt gífurleg hjá ungu fólki, sérstaklega strákum 15-19 ára sem drekka að meðaltali tæpan lítra af gosi á dag. Stúlkur drekka minna af gosi eða tæpan hálfan lítra á dag að jafnaði. Þess í stað drekka þær meira af vatni og sódavatni en ríflega 20% stúlkna segjast aldrei drekka sykrað gos. Þetta mikla gosdrykkjaþamb, þeirra sem það stunda, hefur gífurleg áhrif á sykurneysluna. Strákarnir eru að fá hvorki meira né minna en 21% orkunnar úr viðbættum sykri, þar af kemur rúmur helmingur eða 55% sykursins úr gosi. Stúlkur borða heldur minni sykur og eru að fá um 15 % orkunnar úr viðbættum sykri. Þessi mikla sykurneysla er langt umfram það sem ráðlagt er, en samkvæmt ráðleggingum manneldisráðs er ekki æskilegt að meira en 10% orkunnar komi úr viðbættum sykri. Viðbætti sykurinn bætir kaloríum við matinn án nokkurra annarra næringarefna, hann er tómar hitaeiningar. Það er ljóst að þessi gífurlega sykurneysla er á kostnað heilsusamlegrar fæðu og rýrir næringargildi fæðunnar umtalsvert. Nú á tímum aukinnar offitu, jafnt meðal barna sem fullorðinna er mikilvægt að sporna við þessari óheillavænlegu þróun og draga úr gosdrykkjaneyslu. Rannsóknir hafa sýnt að sykraðir dykkir hvetja öðru fremur til ofneyslu og þyngdaraukningar bæði hjá börnum og fullorðnum. Auðveld leið til að minnka gosdrykkjaneyslu og þar með sykurneyslu er að drekka meira vatn. Einnig má draga úr óhóflegri kaffidrykkju með því að auka vatnsdrykkju. Við erum svo lánsöm að geta drukkið hreint og ómengað vatn beint úr krananum og eigum því að notfæra okkur það í ríkari mæli. Við getum borið vatn fram með mat í staðinn fyrir gosdrykki, aðra sykraða svaladrykki eða bjór. Vatn hentar einnig vel á milli mála í staðinn fyrir kaffi og gosdrykki auk þess sem það er besti svaladrykkurinn við þorsta. Bera má vatnið fram beint úr krananum, með ísmolum, með sítrónusafa og sítrónusneiðum eða öðru til tilbreytingar.

Til að stuðla að aukinni vatnsdrykkju þarf að bæta aðgengi að góðu drykkjarvatni. Það er hægt að gera með því að koma upp drykkjarbrunnum í íþróttahúsum, skólum og á vinnustöðum. Kalt og gott vatn ætti að vera alls staðar aðgengilegt þar sem börn og fullorðnir eru við leik og störf. Þetta heilsuátak Akureyringa með áhersu á vatn er því lofsvert framtak. Stuðlum að betri heilsu og hollustu með því að drekka vatn - hollasta svaladrykkinn.                                                                                                    

 

Hólmfríður Þorgeirsdóttir

matvæla- og næringarfræðingur

hjá Lýðheilsustöð



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica