Sími : 5 800 900
Manneldi

Manneldisráð

7.6.2004

Hér má finna upplýsingar um fyrri starfsemi Manneldisráðs

Upplýsingar um ráðið

Manneldisráð var stofnað með lögum nr 45/1978 og heyrði undir Heilbrigðisráðuneyti. Samkvæmt lögunum var ráðinu ætlað að vinna að samræmingu rannsókna og fræðslu á sviði manneldismála og vera heilbrigðisyfirvöldum til ráðuneytis um manneldismál.

Hlutverk Manneldisráðs var að fylgja manneldis- og neyslustefnu stjórnvalda eftir í samvinnu við heilbrigðisráðuneyti og vera ráðgjafi stjórnvalda, skóla og annarra opinberra stofnana í manneldismálum. Ráðinu var ætlað að fylgjast með þróun manneldismála í landinu, gera reglubundnar kannanir á mataræði og vinna að rannsóknum í næringarfræði í samvinnu við vísindastofnanir.

Við gildistöku laga um Lýðheilsustöð, nr. 18 2003, þann 1. júlí 2003 féllu fyrri lög um ráðið úr gildi.

Ársskýrsla Manneldisráðs 2001

Í ársskýrslunni er m.a. að finna upplýsingar um stefnu ráðsins, helstu verkefni 2001 og upplýsingar um Íslenska gagnagrunninn um efnainnihald matvæla – ÍSGEM.

Sæka skýrslu

Saga Manneldisráðs og hlutverk 1939-1882

Í Heilbrigðismálum 1/1982 birtist grein eftir Snorra Pál Snorrason, þá verandi formann Manneldisráðs, um MANNELDISRÁÐ, SÖGU ÞESS OG HLUTVERK. Saga Manneldisráðs hefst með því að í ársbyrjun 1939 var skipuð 5 manna nefnd til að undirbúa manneldisrannsóknir hér á landi.

Sækja grein  

 

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica